Merkihvoll 20
Lóð · 851 Hellu



479 dagar á sölu
5.900.000 kr
1.135 kr/m²
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 5.200 m2 sumarbústaðaland við Merkihvol 20 í Rangárþingi ytra. Um er að ræða vel staðsetta eignarlóð sem liggur næst Rangá, sem er í landi Merkihvols í Landsveit, með aðgengi frá Landvegi. Lóðin er 5.200 m2 að stærð samkvæmt fasteignayfirliti HMS og er hún í skipulögðu sumarhúsahverfi, staðsett skammt frá Ytri Rangá. Veiturafmagn er á svæðinu. Fallegt útsýni er á svæðinu m.a. til Heklu og Búrfells.
Samkvæmt deiliskipulagi er heimilt að byggja 2 hús á hverri lóð, frístundahús og geymslu/gestahús. Aðalhús getur verið allt að 150 m2 og aukahús allt að 40 m2.
Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit
Verð kr. 5.900.000,- Allar nánari upplýsingar veitir Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
