HÚSASJÁ

Hekluhraun 12

Lóð · 851 Hellu

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
15 myndir

13000 m²

Lóð



206 dagar á sölu

sell

10.000.000 kr

RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu:  Einstaklega falleg 13.000 fm. eignarlóð undir sumarhús sem stendur á skipulögðu sumarhúsasvæði í Heklubyggð, Rangárþingi ytra.  Einstök náttúrufegurð er á svæðinu með miklu útsýni, sést meðal annars í Heklu, Bjólfell og Búrfell.  Stutt inná hálendið, aðeins 1,5 klst. frá bænum og í Landmannalaugar frá húsi um 1-2 klst.  Kalt vatn og rafmagn við lóðarmörk, skv. deiliskipulagi.

Lóðin er stór og gróin. Samkvæmt skipulagsskilmálum eru byggingarreitir rúmir og heimilt að reisa tvö sumarhús á hverri lóð, þar sem því verður komið við.  Fjarlægð milli húsa innan lóðar skal vera minnst 20 m. en þó má gestahús vera nær. Hús skal vera staðsett í samráði við byggingarfulltrúa Rangárþings ytra.  Sumarhús skulu að jafnaði vera á einni hæð og skal leitast við að aðlaga hús sem best að landslagi. Bílastæði eru staðsett á hverri lóð fyrir sig.

Sumarhúsafélag er í Heklubyggð, sem er hagsmunafélag sumarhúsaeigenda á svæðinu en viðhald vega innan svæðisins er meginverkefni þess auk þess sem haldin er fjölskyldusamkoma á vegum félagsins hverja verslunarmannahelgi.

HÆGT ER AÐ SKOÐA SVÆÐIÐ Í ÞRÍVÍÐU UMHVERFI MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Þegar komið er að Svínhaga að sunnanverðu er farið inn á Rangárvallaveg (nr. 264) af Suðurlandsvegi austan Hellu. Vestan Gunnarholts er síðan farið inn á Þingskálaveg (nr. 268) sem liggur að Svínahaga.

UPPLÝSINGAR UM SKIPULAGSSKILMÁLA FRÍSTUNDABYGGÐAR Í HEKLUBYGGÐ MÁ KYNNA SÉR MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Rafmagn og kalt vatn komið að lóðarmörkum.

Kort af Hekluhraun 12

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu