HÚSASJÁ

Klettahraun 14

Lóð · 851 Hellu

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
18 myndir

32600 m²

Lóð



668 dagar á sölu

sell

6.700.000 kr

BYR fasteignasala kynnir KLETTAHRAUN 14 í einkasölu. Eignarlóð í frístundabyggð Svínhagahverfi í Rangárþingi ytra með fjallasýn að Heklu og upp hálendið.

Stutt í ýmsa afþreyingu og útivist, s.s.veiði, gönguferðir og hálendisferðir.Smellið hér fyrir staðsetningu.

Lóðin er gróin og stendur í skipulagðri frístundabyggð í landi Svínhaga Heklubyggð. Lóðin er 32.600,0 m², eignarlóð.  Búið er að leggja veg að lóðinni. Kalt vatn er komið að lóðarmörkum ásamt rafmagni. Ekki er hitaveita á svæðinu.

Samkvæmt deiliskipulagi svæðisins er hámarks byggingarmagn innan hverrar lóðar 300 m². Sumarhús skulu að jafnaði vera á einni hæð og skal leitast við að aðlaga hús sem best að landslagi. Innan byggingareits er heimilt að reisa sumarhús ásamt gestahúsi og verkfærageymslu. Mesta leyfilega vegghæð er 4,5 og mesta hæða í mæni er 6,0 miða við hæð jarðvegs umhverfis húsið. Hámarks stærð verkfærageymslu/bílskúrs er 100 m². Fjöldi bygginga skal aldrei fara yfir fjóra.

Sjá í landeignaskrá Klettahraun 14 (851) land númer 198136: https://geo.fasteignaskra.is/landeignaskra/198136

Ekið er að Klettahrauni frá þjóðvegi 1 um Rangárvallaveg nr. 264 þar til komið er að Þingskálavegi nr. 268 og þaðan sem leið liggur að Klapparhrauni.

Búið er að græða lóðina upp að miklu leiti og planta fjölda trjáplantna, mest birki, furu og lerki. Gróinn „stallur/hæð" er innst á lóðinni,

þar er náttúrulegur gróður meðal annars krækiberjalyng.

Landið er þáttakandi í verkefninu Hekluskógar, og fær árlega úthlutað birkiplöntum til gróðursetningar.

Sumarhúsafélag er á svæðinu sem sér um sameiginlega hagsmuni.-

Sjá hér deiliskipulag Svínhagi Heklubyggð, Rangárþing Ytra, yfirlitsuppdráttur

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is

Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Kort af Klettahraun 14

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18