HÚSASJÁ

Norðurbraut 5

01-0101 · 801 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

200 m²

Stærð

6

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2014

Byggingarár

11085 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



18 dagar á sölu

sell

139.000.000 kr

527.915 kr/m²

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu:  Vandað og reisulegt 174,5 fm einbýlishús með 25,8 fm sambyggðum bílskúr og 40 fm sólskála, samtals 240,3 fm byggt úr timbri árið 2014.  Húsið stendur á 11.085 fm eignalóð í Tjarnarbyggð rétt hjá Selfossi. Að utan er húsið að lang stærstum hluta klætt með hvítu bárujarni í bland við hvítmálað timbur.  Lóðin er virkilega falleg en þar er bæði gróðurhús og hænsnakofi og mikið hefur verið plantað af trjám.  Umhverfis húsið er bæði steypt stétt, stór timbursólpallur með góðum skjólvegg og heitum potti.  Stórt malbikað bílaplan og steypt ruslatunnuskýli með loki.  Einnig er lítil einangruð geymsla við húsið.

Nánari lýsing: Þrjú góð svefnherbergi eru í húsinu, öll með fataskápum.  Forstofa er rúmgóð með fatahengi og inn af henni er flísalagt þvottahús með góðri innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél í vinnsluhæð. Í þvottahúsi er lítil salernisaðstaða. Úr þvottahúsi er svo innangengt í snyrtilegan bílskúr. Borðstofa- stofa og eldhús í opnu og björtu rými þar sem upptekið loft er yfir stæstum hluta þess og úr því er opið inn í virkilega bjarta og snyrtilega sólstofu þar sem útgengt er út á sólpall. Í eldhúsi er snyrtileg innrétting með vönduðum heimilistækjum, góðu skápaplássi og borðplata er frá Fantófell. Baðherbergið er með upphengdu wc, fallegri innréttingu og skáp, walk in sturta með glervegg og úr baðherbergi er hurð út á sólpall.

Gengið er upp stiga á efri hæð hússins þar sem er virkilega björt og falleg betri stofa. Á henni eru margir gluggar og virkilega fallegt útsýni yfir sveitina og fjallahringinn.

Á gólfum er vínilparket í alrými, harðparket á herbergjum og flísar eru á flestum votrýmum og svæðaskiptur gólfhiti. Ofnar í sólskála.

Í alla staði vel skipulögð, snyrtileg og vönduð eign. Sjón er sögu ríkari. Bókið skoðun!

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Kort af Norðurbraut 5

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð