HÚSASJÁ

Bleikjulækur 31

01-0101 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
47 myndir

190 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2020

Byggingarár

896 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur



26 dagar á sölu

sell

112.500.000 kr

589.932 kr/m²

Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu, Bleikjulæk 31, Selfossi. Mjög snyrtilegt fullbúið 190,7 fm einbýlishús.  Stór timburverönd með skjólveggjum.  Vandaður 15 fm skúr á baklóð.  Mulningur í plani, stór innkeyrsla.

Nánari lýsing.

Forstofa flísalögð þar er skápur.

Forstofusalerni flísalagt þar er innrétting.

Eldhúsinnrétting snyrtileg með tanga og vönduðum tækjum.  Neðri skápar með hvítum höldulausum frontum og efri skápar dökkir. Innrétting og tæki frá IKEA.  Bakaraofn með sjálfhreinsibúnaði og combi ofn.  Stórt helluborð og háfur.   Rennihurð er úr eldhúsi út á verönd.

Stofa og eldhús er opið í eitt.

Fjögur svefnherbergi öll með skápum.

Baðherbergi er flísalagt þar er innrétting og walk in sturta.  Útgengt er á verönd af baðherbergi.

Þvottahús er rúmgott og er það jafnframt bakinngangur.  Stór innrétting er í þvottahúsi.

Innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi.  Bílskúrinn er með epoxy á gólfi.  Bílskúrshurð með opnara.

Gólfhiti með stýringum. Hvítar innihurðir. Hvít loftaklæðning með innfeldri lýsingu.  Vínylparket á gólfum.

Klætt með dökku bárujárni og standandi timbri.  Bárujárn á þaki.

Stór timburverönd með skjólveggjum aftan við hús og við gafl.  Gert er ráð fyrir heitum potti á verönd.

Af verönd er gengið inn í vandaðann skúr sem er upphitaður og stendur á steyptri plötu.  Gólfniðurfall, rafmagn, heitt og kalt vatn er í skúrnum.  Epoxy er á gólfi.

Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996  steindor@husfasteign.is

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

Kort af Bleikjulækur 31

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð