Miðdalur 18E
01-0101 · 735 Eskifirði



22 dagar á sölu
sell
39.000.000 kr
657.673 kr/m²
INNI fasteignasala s. 580 7905 - inni@inni.is
Virkilega falleg og sérlega vel skipulögð tveggja herbergja endaíbúð í raðhúsi á Eskifirði.
Stofa og eldhús eru í opnu rými með parket á gólfi og útgengt er úr stofu í garð. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, þar er sturta, handklæðaofn og flott innrétting. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi. Svefnherbergi er rúmgott með parket á gólfi og fjórföldum fataskáp.
Mjög falleg og vel skipulögð eign með góðu skápaplássi.
Innréttingar eru frá HTH.
Á gólfum er parket og flísar frá Birgisson. Innihurðir einnig frá Birgisson.
Utanhússklæðning er álklæðning frá Stacebond.
Blöndunartæki frá Grohe.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna










