Birkilundur 8
Lóð · 320 Reykholti í Borgarfirði



489 dagar á sölu
15.900.000 kr
Fasteignasalan Miðborg kynnir Birkilundu 8, í Húsafelli, eignarlóð með fasteignanúmer F2334498.
Um er að ræða afar glæsilega og vel staðsetta 1.250 fm. kjarri vaxna eignarlóð ásamt púða og samþykktum teikningum af 127,1 fm. frístundahúsi á einni hæð. Húsið er teiknað af teiknistofunni TAG með einhalla þaki og skiptist í forstofu, hol/gang, stofur, eldhús, tvö baðherbergi og þrjú svefnherbergi, þar af hjónasvíta með sérbaðherbergi. Íbúðarhluti hússins er 118,5 fm. og geymsla 8,6 fm. Húsið er teiknað sem timburhús, en einnig er möguleiki á að reisa húsið úr forsteyptum einingum. Gert er ráð fyrir gólfhitakerfi í steyptri plötu. Salarhæð við suðurhlið er ca. 3,9 m. Gólfsíðir gluggar á suður- og vesturhliðum.
Rafmagn, kalt vatn og hitaveita við lóðarmörk. Einstakur staður í þessari náttúruparadís sem Húsafell er. Kjarri vaxið hraun, sundlaug, verslun, hótel og golfvöllur er á svæðinu. Stutt á Langjökul, Arnavatnsheiði, að Hraunfossum, Víðgelmi og fleiri náttúruperlum. Seljandi hefur möguleika á að reisa húsið fyrir væntanlega kaupendur.
Nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lögg. fasteignasali, í síma 894-7070, tölvupóstur bjorn@midborg.is.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna




















