Seleyrarland
Lóð · 311 Borgarnesi



795 dagar á sölu
79.900.000 kr
Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteignasali co FRÓN fasteignamiðlun sýnir eignina s. 897-1212. finnbogi@fron.is
Um er að ræða landspildu sem er um 17,7 ha og liggur niður við sjó, í landi Seleyrar, vestan við þjóðveg 1, sunnan við Borgarfjarðabrú. Landið tilheyrir Borgarbyggð, landnúmer 210362. Góð fjárfesting fyrir athafnafólk. Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteignasali sýnir eignina, 897-1212 finnbogi@fron.is
Búið er að leggja drög að sumarhúsabyggð fyrir um 40 bústaði. Gott tækifæri að fjárfesta núna í framtíðarbyggð á afar henntugum stað!
Þarna er hentugt að byggja útleiguhús fyrir ferðaþjónustu og þjónustukjarna eða ferðaþjónustuhús sem þjónustu ,,við veginn". Hentugt útivistasvæði.
Einnig mjög henntugt að skipuleggja sem sumarhúsabyggð fyrir ferðaþjónustu eða fyrir einstaklinga.
Stutt er að sækja í heitt og kalt vatn. Gott að byggja hús þarna, hentugur jarðvegur og stutt á fast efni. Auðvelt að leggja veg.
Hluti af svæðinu er vaxið birkiskógi. Staðsetningin er nær sjó, þannig að það sért vel út á sjóinn í vestur, sér Snæfellsnesið, Mýrarnar og upp í Borgarfjörð.
Landið snýr vel að sólu. Þarna er falleg kvöldsól, norðurljós og náttúrufegurð.
Nú liggur fyrir breyting á vegstæði sunnan við Borgarnes og áhersla sveitafélagsins eftir nýju landi undir byggingar, sem þessu.
Afar stutt er í alla þjónustu yfir í Borgarnes. Göngufæri er frá Borgarnesi að landspildunni.
Hægt er að kaupa veiðileyfi í sjónum. Eignin er veðbandslaus og tilbúin til afhendingar strax.
Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteigna- skipa og fyrirtækjasali og lögg. leigumiðlari hefur starfað við fasteignasölu í 40 ár og er eigandi af FRÓN fasteignamiðlun. Sérhæfing í sölu fasteigna, hótela, fyrirtækja, skipa, lands og bújarða. Lögn reynsla af veðmötum á fasteignum og fyritækjum. Einnig í fjármálum heimilanna og í rekstri fyrirtækja. Leigumiðlun fasteigna, íbúða og atvinnuhúsnæðis.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir










