HÚSASJÁ

Akravellir 2

Lóð · 301 Akranesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
14 myndir

798 m²

Lóð



274 dagar á sölu

sell

35.900.000 kr

44.987 kr/m²

Fasteignasalan Miðborg kynnir:

Fágæta sjávarlóð (eignarlóð 798 fm.) við Akravelli 2 í Hvalfjarðarsveit.   Öll gatnagerðargjöld eru þegar greidd.

Lóðin er úr landi Kross (Krossland vestra) og liggur við bæjarmörk Akraness og Hvalfjarðarsveitar við svokallaðan Leynir (Leynisvog).  Fallegt útsýni er af lóðinni, en hún stendur innst í 6 húsa botnlangagötu.

Svæðið er skipulagt sem lítið þéttbýli, með 12 sjávarlóðum, 12-15 öðrum einbýlis- og parhúsalóðum og nokkrum lágreistum (2ja hæða) fjölbýlishúsum.  Á lóðinni má byggja einbýlishús á einni hæð, allt að 300 fm. skv. gildandi skipulagi.  Fyrir liggur tillöguteikning að 300 fm. húsi á lóðinni.

Lóðin er talin þægileg í byggingu, þ.e. stutt er á fast og á næstu lóðum hefur gröftur undir púða ekki verið nema ca. 1-1,5 metri að meðaltali.

Öll gatnagerðargjöld eru greidd, en greiða þarf byggingarleyfisgjald og tengigjöld veitna.  Rarik sér um rafveitu á svæðinu, en Orkuveita Reykjavíkur (Veitur) sér um vatnsveitu, hitaveitu og fráveitu.  Ljósleiðaratenging er í hverfinu.

Hvalfjarðarsveit er spennandi og vaxandi sveitarfélag í næsta nágrenni við höfuðborgarsvæðið, þar sem mannlíf er gott og afslappað.

Lóðin afhent í eftirfarandi ástandi: Malbikaðar götur. Tengistútar fyrir lagnir og fráveitu eru tilbúnir.

Allar nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lgf í síma 894-7070 eða á bjorn@midborg.is.

Kort af Akravellir 2

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð