HÚSASJÁ

Báruklöpp 6

01-0101 · 250 Suðurnesjabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
33 myndir

141 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2024

Byggingarár

510 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Heitur pottur



375 dagar á sölu

sell

98.500.000 kr

700.569 kr/m²

Sunna fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna vönduð og glæsileg fullbúin 3ja herbergja 140,6 fm steypt parhús með innbyggðum bílskúr (30,8 fm) og heitum potti við Báruklöpp í Garði, Suðurnesjabæ.

Um er að ræða Báruklöpp 6, 8 og 12. (Allar myndir að innanverðu eru af Báruklöpp 12.)

ATH. Húsin eru tilbúin til afhendingar. Skoða myndband af eigninni.

Allar innréttingar og hurðar eru sérsmíðaðar frá Grindinni ehf. og skilast með vönduðum eldhústækjum frá Siemens, þ.á.m. innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Þau skilast fullmáluð og með hágæða gólfefnum. Gólfhiti er í öllum gólfum og hljóðvistardúkur er í loftum. Akrýlsteinn er á borðplötum. Nánari upplýsingar eru í skilalýsingu.

Húsin eru vel skipulögð, með stórri stofu og gólfsíðum gluggum, þau skiptast í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi ásamt bílskúr.

Nánari lýsing:

- Húsin eru staðsteypt og gluggar og útidyrahurðir eru úr timbri/áli.

- Húsin eru klædd að utan með tveggja millimetra þykkri standandi álklæðningu.

- Lóð er fullfrágengin með torfþökum, steyptu plani og stéttar eru með snjóbræðslulögn. Sólpallur er með heitum potti á lóð. Sorptunnuskýli fylgja.

Umhverfi:

Sami byggingaraðilinn hefur byggt allar eignir við götuna sem gerir það að verkum að ásýnd götunnar er afar snyrtileg og samræmd í útliti. Óspillt náttúra er allt um kring og stutt í alla þjónustu og ýmsa útivist.

Byggingaraðili:

Bragi Guðmundsson ehf. Traustur verktaki með áratuga reynslu.

*Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður lagt á sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignanna.

Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs. í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Kort af Báruklöpp 6

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33