Mýrdalur 5
01-0101 · 260 Reykjanesbæ



270 dagar á sölu
119.900.000 kr
636.750 kr/m²
RE/MAX / Júlían J. K. Jóhannsson Lgf. (sími 823 2641 & julian@remax.is) kynna: Fallegt og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð við Mýrdal 5 í Innri Njarðvík. Eignin er skráð 188,3 fm, þar af er bílskúr 43,10fm. Húsið var byggt árið 2018 og skartar mikilli lofthæð, stórum viðarpalli og heitum potti. Möguleiki á að bæta við 4. svefnherberginu.
- Glæsilegt einbýli, byggt 2018, með mikilli lofthæð.
- Stór viðarpallur með heitum potti
- 3 rúmgóð svefnherbergi og möguleiki á 4. svefnherberginu.
- Stór bílskúr.
- 2 baðherbergi og gólfhiti í allri eigninni.
Frekari upplýsingar veitir Júlían J. K. löggiltur fasteignasali í síma 823 2641 eða á netfanginu julian@remax.is.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa með vínylparketi á gólfum og svartum fataskáp.
Barnaherbergin eru tvö. Parket á gólfi.
Stofa, borðstofa og sjónvarpshols er í opnu, stóru og björtu rými. Skilrúm er á milli hols og stofu. Þaðan er gengið út á sólpall. Vínylparket á gólfum.
Eldhús með svartri innrétting og ljós grárri borðplötu. Mikið skápapláss. Bökunarofn og örbylgjuofn í vinnuhæð. Vínylparket á gólfum.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskáp. Parket á gólfum.
Baðherbergi með svartri innréttingu og stórum spegli á vegg, upphengt salerni, handklæðaofn, baðkar og inngengri sturtu. Ljós gráar flísar í hólf og gólf. Útgengi út á viðarpall beint í heitan pott út frá baðherbergi.
Gestasalerni með svartri innréttingu með spegli og upphengt salerni. Gráar flísar á gólfum. Gestasalerni er innaf bílskúr.
Gert er ráð fyrir Þvottahúsi í bílskúr.
Bílskúr mjög rúmgóður með geymslulofti. Bílskúr er ómálaður og eftir er að spartla veggi.
Fallegt og vel skipulagt fjölskylduhús í vinsælu Stapaskólahverfi sem vert er að skoða.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.200 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
































