HÚSASJÁ

Vogatunga 42

01-0101 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
36 myndir

129 m²

Stærð

2

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2018

Byggingarár

429 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur



22 dagar á sölu

sell

142.900.000 kr

1.100.925 kr/m²

Háborg fasteignasala og Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali kynna í einkasölu fallegt endaraðhús við Vogatungu 42 í Mosfellsbæ.

Um er að ræða endaraðhús á góðum stað í Leirvogstungu með útsýni til sjávar. Eignin er skráð 129,8 fm og skiptist í 102,5 fm íbúð og 27,3 fm bílskúr. Auk þess er um 12 fm óskráð rými/herbergi fyrir ofan bílskúr. Um 140 fm skjólsæll og sólríkur pallur með heitum potti í garðinum.

Íbúðin skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, hjónaherbergi með fataherbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymsluloft.

Gengið er inn í anddyri með rúmgóðum fataskáp.

Alrými er bjart og samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Í eldhúsi er mjög rúmgóð hvít innrétting frá Nobila. Öll eldhústæki eru frá Siemens, innbyggð uppþvottavél og ísskápur, bakaraofnar eru tveir.

Svefnherbergi innan íbúðar eru þrjú, inn af hjónaherbergi er fataherbergi, þaðan er aðgengi upp á geymsluloft. Í báðum barnaherbergjum eru fataskápar.

Baðherbergi er flísalagt að hluta. Þar eru bæði bað og sturta, góð innrétting við vask, speglaskápar, upphengt salerni og þvottaaðstaða með mjög góðu skápaplássi.

Á öllum gólfum er parket nema á baðherbergi eru flísar.  Hátt er til lofts í húsinu, innfelld ljós og gólfhiti.

Bílskúr er 27,3 fm að stærð auk óskráðs rýmis, um 12 fm, á efri hæð sem nú er notað sem svefnherbergi. Á bílskúrsgólfi er epoxy.

Í garðinum er um 140 fm sólrík og skjólsæl timburverönd, með skjólveggjum. Á veröndinni er heitur pottur og útigeymsla. Bílastæði er hellulagt og með hitalögnum.

Skemmtileg eign innarlega í rólegum botnlanga í fjölskylduvænu hverfi með frábæru útsýni til sjávar og sveita!

Nánari upplýsingar veitir Kristín Rós Magnadóttir, lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á kristin@haborg.is.

Kort af Vogatunga 42

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36