HÚSASJÁ

Laxatunga 151

01-0101 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

265 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2022

Byggingarár

650 m²

Lóð

Sérinngangur

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



128 dagar á sölu

sell

185.000.000 kr

698.640 kr/m²

Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasala Grafarvogs kynna Laxatungu.

Húsið er tilbúð til afhendingar.

Glæsilegt einbýlishús á góðum stað í  rólegum botnlanga. Húsið er alls 264,8 fermetra einbýlishús á einni hæð með innbyggðum 47,9 fermetra bílskúr. Lóðin sem húsið stendur á er 650 fermetrar.

Húsið sem er á einni hæð er forsteypt einingahús. Gluggar og hurðar heita Ideal combi og eru timbur/álklæddir frá  JIAverk.

Húsið skiptist í fjögur svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, rúmgott baðherbergi, gestasalerni, þvottahús, geymslu stóra stofu og rúmgott eldhús.

húsið verður afhent samkvæmt eftirfarandi lýsingu:

Tilbúið til innréttinga.  Fullbúið að utan. Lóð grófjöfnuð án sorpskýlis.  Útveggir málaðir og rakavarnarlag frágengið. Þak er fullfrágengið. Án eldvarnarhurðar á milli bílskúrs og íbúðarhluta. Rafmagnstafla uppsett og tengd. Tengigjöld fyrir rafmagn, heitt og kalt vatn að fullu greidd. Gluggar ásamt opnanlegum fögum fullgerðir með glerjum og gluggabúnaði. Allir milliveggir komnir upp samkvæmt teikningu, allir innveggir spartlaðir, gólfhiti tengdur við grind án stýringa. Neysluvatnslagnir verða tengdar, rafmagnið ídregið í tengla og dósir samkvæmt teikningum, þó án inlagnaefnis. Húsinu er skilað með öllum gólfum flotuðum. Bílskúrshurð sem er frá Idex er með rafmagnsopnara.

Ídráttarrör fyrir heitan pott verða komin og verða lögð frá bílskúr að útvegg sem snýr inn í garð

Frárennsli fyrir heitan pott verður klárt.

Húsið er með aukinni lofthæð, 2,8 metrar.

Kaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt.

Þetta er virkilega falleg og vel skipulögð eign.

Vantar allar gerðir eigna á skrá. Persónuleg og góð þjónusta.

Nánari upplýsingar veitir:

Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali

Fasteignasalan Grafarvogi

S: 863-1126

www.fastgraf.is

Kort af Laxatunga 151

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu