HÚSASJÁ

Hamrabrekkur 10

01-0101 · 271 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
53 myndir

129 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2026

Byggingarár

4290 m²

Lóð

Garður

Heitur pottur



178 dagar á sölu

sell

190.000.000 kr

1.469.451 kr/m²

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun ​- Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040  - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt og glæsilegt 129,3 m2 sumarhús/heilsárshús á tveimur hæðum á 4290,0 m2 eignarlóð, í útjaðri byggðar stutt frá Hafravatni, 271 Mosfellsbæ. Frábær staðsetning og glæsilegt útsýni, ca. 10 mín akstur frá höfuðborgarsvæðinu. Hitaveita er í húsinu.

Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu. Stórir gluggar og mikil lofthæð sem gerir eignina bjarta og skemmtilega. Clipso hljóðdúkur í lofti sem gefur góða hljóðvist. Fallegar innréttingar og gólfefni. Sjónsteypa á hluta útveggja neðri hæðar setur skemmtilegan svip á rýmin. Loftskiptikerfi er í húsinu. Plejd ljósabúnaður frá Ískraft, auðvelt að endurforrita ljósin eftir þörfum hvers og eins, án aðstoðar iðnaðarmanns.

Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með timbri.

Stór verönd með snjóbræðslu, sem væri möguleiki á að setja svalalokun á. Stór heitur pottur með nuddstútum. Stórar svalir með snjóbræðslu og stórar þaksvalir með 360° glæsilegu útsýni.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent

Nánari lýsing:

Efri hæð:

Forstofa er með fatahengi og parketi á gólfi.

Svefnherbergi nr. 1 er með parketi á gólfi og fataskápum. Úr herberginu er gengið út á svalir.

Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskápum. Úr herberginu er gengið út á svalir.

Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi. Úr herberginu er gengið út á svalir.

Baðherbergi nr. 1 er flísalagt með innréttingu, vegghengdu salerni og sturtu. Innbyggð tæki eru á baðherbergi. Úr baðherbergi er gengið út á svalir.

Neðri hæð:

Baðherbergi nr. 2 er flísalagt með sturtu, borðplötu og skolvaski. Innbyggð tæki eru á baðherbergi. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.

Eldhús, stofa og borðstofa eru í björtu opnu rými með parketi á gólfi. Um 6,5 metra lofthæð er yfir stofunni. Í eldhúsi er falleg innrétting með miklu borðplássi. Steinn frá mood interiors er á borðum. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, blástursofn og helluborð. Úr rýminu er gengið út á flísalagða verönd.

Möguleiki er á að kaupa eignina með húsgögnum.

Verð kr. 190.000.000

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Kort af Hamrabrekkur 10

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu