HÚSASJÁ

Gerplustræti 12

01-0101 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

115 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2017

Byggingarár

4079 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



75 dagar á sölu

sell

85.900.000 kr

744.367 kr/m²

Bókaðu einkaskoðun í síma 7704040

Valhöll fasteignasala og Gylfi Þór löggiltur fasteignasali kynna:

GERPLUSTRÆTI 12 - 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ 33 FM VERÖND/SVÖLUM. Fasteignamat næsta árs 84.650.000 kr

Vel skipulögð og falleg eign skráð  skráð 115,4 m2. íbúð ásamt stæði í bílageymslu.

Íbúðin er á miðhæð í þriggja hæða lyftuhúsi og fylgir stæði í bílageymslu.

Mjög stutt eða um 100 metrar í grunnskóla og leikskóla.

NÁNARI LÝSING:

Forstofa með flísum og fataskápum.

Gangur með parketi.

Herbergi tvö mjög rúmgóð barnaherbergi með parketi og skápum.

Baðherbergið  flísalagt í hólf og gólf, innrétting og walk in sturta. Þvottaaðstaða innan baðherbergis, skápar fyrir þvottavél og þurrkara.

Hjónaherbergið er rúmgott og er parket á gólfi og fataskápar.

Stofan er björt með gluggum á tvo vegu og útgengt út á glæsilegar 32,9 fm suðvestur svalir/verönd sem er mikil viðbót við íbúðina og auðvelt að koma þar fyrir heitum potti og fl.

Eldhúsið er við hlið stofu, opið á milli, með hvítri innréttingu, borðkrókur og góð tæki.

Geymsla er 12,8 m2.

Á jarðhæð er stæði í bílageymslu og er þar gert ráð fyrir rafbílahleðslu í hverju stæði.

Nánari upplýsingar veitir:

Gylfi Þór Gylfason s. 7704040 löggiltur fasteignasali eða á gylfi@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Gerplustræti 12

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu