Engjavegur 19
01-0101 · 270 Mosfellsbæ



5 dagar á sölu
165.000.000 kr
897.227 kr/m²
OPIÐ HÚS - LAUGARDAGINN 7. MARS´26, FRÁ kl. 14.00 - 15.00.
Sveit í borg - Mjög fallegt og vel staðsett 183,9fm. einbýlishús á tveimur hæðum með sérstæðum bílskúr við Engjaveg í Mosfellsbæ. Um er að ræða finnskt einangrað bjálkahús sem stendur á 1.534 m2 eignarlóð sem einnig er jaðarlóð til austurs.
Hér getur þú skoðað eignina í 3 D
Neðri hæð: Komið inn af verönd við inngang í rúmgóða forstofu, frá forstofu er gengt áfram í hol en einnig inn í rúmgóða geymslu/þurrkherbergi og þaðan áfram inn í rúmgott þvottahús með vinnuborði og miklu skápaplássi. Einnig er gengt frá eldhúsi í þvottahús (hringgengt). Eldhús með fallegri innréttingu, borðplötur úr límtré, eyja með nýlegu spanhelluborði, mikið skápapláss, góð borðaðstaða og útgengi út á verönd til vesturs. Stór stofa með mikilli lofthæð, kamína í stofu, útgengi út á verönd. Innaf stofu er herbergi, einnig með útgengi út á verönd, herbergið má t.d. nýta sem borðstofu eða svefnherbergi. Rúmgott baðherbergi með upphengdu salerni, baðkari, walk in sturta, innrétting við vask, handklæðaofn, flísar á gólfi og veggjum að mestu. Rúmgott svefnherbergi með skápum. Á gólfi forstofu, geymslu, þvottahúss og barðherbergis eru flisar, harðparket er á öðrum gólfum neðri hæðar. Hiti er í öllum gólfum neðri hæðar.
Efri hæð: Frá stofu/holi liggur voldugur stigi til efri hæðar með þrepum úr límtré. Efri hæðin, sem er talsvert undir súð, samanstendur af mjög stóru hjónaherbergi með lausum skápum, rúmgóðu salerni, innrétting við vask, handklæðaofn, upphengt WC. Mjög stórt alrými sem í dag er nýtt sem vinnurými og mjög stórt sjónvarpsrými, auðveldlega mætti bæta við svefnherbergi á efri hæð. Öll gólf efri hæðar eru klædd borðum úr furu. Flestir gluggar hússins eru í frönskum stíl, flugnanet eru í öllum opnanlegum gluggafögum.
Rúmgóður flísalagður bílskúr með rislofti, heitt og kalt vatn, hurð með rafmagnsopnun, steypt aðkeyrsla með hita í. Stór lóð með veröndum í suð - austur og norð-austur, geymslukúr og leiktæki á lóð, heitur pottur með pottastýringum í appi, fjarstýrður sláttuþjarkur fylgir. Öll útiljós eru með sólarsellu. Varmaskiptir fyrir neysluvatn, kalt vatn upphitað í heitt neysluvatn. Heimild er til að stækka/byggja við húsið þar sem húsið fyllir ekki uppí byggingarreit sbr. samþykki byggingarfulltrúa.
Einstök, frábærlega staðsett eign á friðsælum stað með alla helstu þjónustu höfuðborgarsvæðisins innan seilingar, sannkölluð sveit í borg sem sameinar kyrrð sveitasælunnar og þægindi borgarlífsins. Leikskólinn Reykjakot er í göngufæri, skólabíll og strætó ganga þaðan í gunnskóla bæjarins.
Frekari upplýsingar veitir:
Kristinn Tómasson Viðskiptafr. MBA
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali.
Gsm. 820-6797, kristinn@hofdi.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir

























































