HÚSASJÁ

Efstaland 6

01-0101 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
37 myndir

201 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2016

Byggingarár

482 m²

Lóð

Sérinngangur

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



44 dagar á sölu

sell

142.900.000 kr

711.299 kr/m²

Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali (s. 693 9258) og LANDMARK fasteignamiðlun kynna:

Tveggja hæða 200,9 m2 raðhús með aukinni lofthæð á góðum stað í Helgafellslandi, Mosfellsbæ. Húsið er vel skipulagt en búið er að gera töluverðar breytingar frá upphaflegum teikningum þar sem búið er að sameina tvö herbergi í eina hjónasvítu á neðri hæðinni en einnig var sjónvarpsstofa á efri hæð stækkuð með því að fjarlægja eitt svefnherbergi. Í bílskúr er búið að stúka af auka svefnherbergi. Húsið var byggt árið 2016.

Komið er inn á neðri hæð hússins sem skiptist í forstofu, hjónasvítu með fataherbergi og baðherbergi, barnaherbergi, þvottahús, bílskúr og auka herbergi inn af bílskúr.

Efri hæðin er stór og opin með mikilli lofthæð og skiptist í stofu/borðstofu, eldhús, sjónvarpsstofu, baðherbergi og svalir með heitum potti.

Nánari lýsing:

Efri hæð

Stofa / borðstofa: Björt og opin stofa þar sem aukin lofthæð nýtur sín, gólfsíðir gluggar og fallegt útsýni.

Eldhús: Rúmgott og opið eldhús með eyju. HTH innrétting með góðu skápaplássi, get er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu, innbyggð uppþvottavél, gashelluborð, blástursofn og combi ofn. Borðplata úr kvartssteini er á innréttingunni.

Sjónvarpsstofa: Einstaklega rúmgóð sjónvarpsstofa sem býður uppá ýmsa möguleika, t.d. möguleiki á að setja upp annað svefnherbergi skv. upphaflegum teikningum.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, upphengd innrétting og salerni ásamt "walk-in" sturtu þaðan sem er hægt að fara beint út á svalir.

Svalir: Stórar hellulagðar svalir með heitum potti og fallegu útsýni en útgengt er á svalirnar bæði úr eldhúsi og baðherbergi.

Neðri hæð

Forstofa: Rúmgóð forstofa með fataskápum, flísar á gólfi.

Hol: Úr forstofu er komið inn í rúmgott hol en þaðan er innangengt í hjónasvítu og barnaherbergi. Fallegur stigi með hertu gleri upp á efri hæð en undir stiganum er búið að útbúa lítið leikrými.

Hjónasvíta: Stór hjónasvíta með tveimur fataherbergjum en einnig er hægt að nýta annað þeirra sem litla skrifstofu.

Baðherbergi: Inn af hjónasvítunni er baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, "walk-in" sturta, upphengd innrétting og salerni.

Barnaherbergi: Rúmgott barnaherbergi með fataskápum.

Þvottahús: Innrétting með góðu skápaplássi þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Ræstivaskur í innréttingu.

Bílskúr: Bílskúrinn er innangengur úr forstofu og skráður rúmir 35 m2. Búið er að stúka af gott svefnherbergi með fataskápum inn af skúrnum. Framhluti bílskúrsins er nýttur sem geymsla.

Bakgarður: Úr herbergi í bílskúr er útgengt út í bakgarð sem býður uppá ýmsa möguleika.

Lóð: Snjóbræðsla í bílaplani framan við húsið. Búið er að setja upp hleðslustöð við bílskúrshurð.

Eignin er vel staðsett og stutt í helstu þjónustu svo sem leikskóla, grunnskóla, matvöruverslanir, íþróttaaðstöðu og fleira.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali, í síma 693 9258 eða jonoskar@landmark.is

Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Efstaland 6

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð