Lautarvegur 6
01-0101 · 103 Reykjavík



46 dagar á sölu
159.900.000 kr
906.977 kr/m²
Betri Stofan og Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515, jason@betristofan.is kynna: Lautarvegur 6, nýleg 4ra til 5 herbergja neðri sérhæð og bílskúr í vönduðu 3-býli á þessum eftirsótta stað stutt frá Borgarspítalanum. Eignin er samtals 176,3 fm þar af bílskúr 26 fm. Frábær staðsetning og nálægt fallegu útivistarsvæði. Stutt í Nauthólsvíkina og Fossvoginn. Úti Inni Arkitektar hönnuðu húsið.
Myndband úr eigninni.
Anddyri, sérinngangur og forstofa með flísum og hiti í gólfi.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar, útgengt þaðan út á yfirbyggða verönd (ca 20 fm sem er ekki í fermetratölu eignar) að hluta til (gler lokanir) og þaðan er gengið út á afgirta timburverönd sem snýr í suður. Frá stofu er líka lítill sjónvarpskrókur (hluti af borðstofu á teikningu), einnig er lítið vinnuherbergi við hliðina.
Eldhús og stofa í opnu rými. Vandaðar innréttingar, Miele tæki, stór eyja, span helluborð. Silestone-steinplata á eldhúsborðum og eyju.
Baðherbergi: rúmgott með rúmgóðri sturtuaðstöðu og vandaðari innréttingu, Gluggi á baði, flísar í hólf og gólf. Gólfhiti.
Aðalsvefnherbergi I: Svefnálma: Rúmgóð hjónasvíta/hjónaherbergi með útgangi út á hellulagða verönd, fataherbergi og baðherbergi inn af hjónasvítu, fín sturtuaðstaða og vönduð tæki, flísar á gólfi og veggjum. Gólfhiti. Opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi II rúmgott rými með fataskápum.
Svefnherbergi III rúmgott rými með fataskápum.
Rúmgóð 10,6 fm sérgeymsla í sameign ásamt góðri hjóla- og vagnageymslu og þvottaaðstöðu
Hiti í bílaplani og gangstígum.
Bílskúr er fullbúinn með hita og sjálfvirkum opnara. Rafhleðslustöð í bílskúr. Fjær bílskúr.
Staðetning er vinsæl, stutt er í gróið svæði í Fossvoginum, ásamt frábærum göngu og hjólaleiðum.
Nýlegar endurbætur:
2026: Forhitari settur fyrir neysluvatn
2025: Múrverk yfirfarið og málað að utan.
2024: Húsið var sílanhúðað að utan
Allar nánari upplýsingar: Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






































