HÚSASJÁ

Mýrargata 26

01-0503 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

130 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2014

Byggingarár

2410 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



553 dagar á sölu

sell

150.000.000 kr

1.144.165 kr/m²

LIND fasteignasala og Elías Haraldsson löggiltur fasteignasali kynnir : vel skipulagða og vandaða 131,1 m2. fjögurra herbergja íbúð á 5. hæð með extra lolthæð og þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og sér þvottahúsi ásamt sér stæði í bílageymslu. Glæsilegt sjávar- og fjallaútsýni.  Gólfhiti og gólfsíðir gluggar í stofu og inn í hjónasvítu. Sameiginlegar þaksvalir eru á 6. og 7. hæð með einstöku útsýni.

Eignin skiptist : forstofa, hol, borðstofa og stofa í alrými með eldhúsi, þrjú herbergi, tvö baðherbergi, þvottahús innan íbúðar og sér geymsla í sameign. Bókið skoðun í síma 777-5454 eða elias@fastlind.is

Nánari lýsing:

Forstofa : er með flísum á gólfi og góðum fataskápum. Millihurð er á milli forstofu og alrými íbúðar.

Hol : parketlagt.

Stofa, borðstofa og eldhús : er í opnu og björtu alrými með gólfsíðum gluggum, útsýni og útgengi út á svalir. Fallegt sjávar- og fjallaútsýni að gömlu höfninni og víðar.

Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu með neðri og efri skápum (ná upp í loft) með flísum á milli skápa , gott skápa- og skúffu pláss. Hvítur kvarts-steinn, undirlímdur vaskur, bökunarofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, tvöfaldur ísskápur með frysti. Mile gashelluborð og vifta þar fyrir ofan.

Hjónasvíta : er rúmgóð og björt með stórum gólfsíðum gluggum og innbyggðum fataskápum. Inn af herberginu er sér baðherbergi með upphengt salerni, sturtu, baðinnréttingu með speglaskáp yfir og handklæðaofn. Flísar á hluta af veggjum og á gólfi.

Tvö barnaherbergi : með parketi á gólfi. Búið að breyta öðru herbergi í fataherbergi.

Þvottaherbergi : er með flísum á gólfi, hvít innrétting með efri og neðri skápum, lagt fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu, skolvaskur.

Baðherbergi : flísalagt, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofn, upphengt salerni, baðinnrétting með handlaug og speglaskáp þar fyrir ofan.

Eigninni fylgir 7,2 m2 sér geymsla í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Sérmerkt stæði í neðri bílakjallara með tengi fyrir rafbíl fylgir íbúðinni.

Húsið var byggt árið 2014, hannað með opnum garði í miðju hússins. Þrjár lyftur eru í húsinu og sameiginlegar þaksvalir með einstöku útsýni á 6 og 7 hæð.

Í húsinu er húsfélag með húsverði. Húsið var málað að utan 2021. Eignin er vel staðsett i göngufæri við alla helstu þjónustu, verslanir og úrval af veitingastöðum. Allar upplýsingar veitir Elías Haraldsson fasteignasali í síma 777-5454 eða elias@fastlind.is

Kort af Mýrargata 26

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð