HÚSASJÁ

Langirimi 22

01-0101 · 805 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
13 myndir

21 m²

Stærð

1

Herbergi

2011

Byggingarár

5040 m²

Lóð

Geymsla



180 dagar á sölu

sell

15.500.000 kr

731.132 kr/m²

Fasteignamiðlun Grafarvogs s: 575-8585 kynnir eignina Langirimi 22, 805 Selfoss, í landi Þóroddstaða í Grímsnesi, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 232-2568 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Langirimi 22 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 232-2568, birt stærð 21.2 fm.

Um er að ræða sumarhús og geymslu á 5.040 fm leigulóð í landi Þóroddstaða í Grímsnesi. Sumarhúsið er 15,2 fm og geymslan 6 fm. Nýr ca 80 fm sólpallur er við húsin og unnið er að smíði 12 fm sólstofu við sumarhúsið. Sumarhúsið er klætt að innan með ljósum panel og þar er filtteppi á gólfi. Ágæt ljós eldhúsinnrétting er í húsinu. Rafmagnshitun er í húsinu en hitaveita er komin að lóðarmörkum. Salerni er í geymsluhúsnæðinu og gott geymslupláss.

Lóðin er 5.040 fm og afgirt, grasflöt er við bústaðinn og tré sem veita skjól við bústaðinn. Búið er að planta talsverðu af trjám á lóðinni og mikið er af lyngi og öðrum lággróðri. Lóðarleiga er 122.951 á ári. Gjald í sumarhúsafélag er 20.000 á ári.

Sumarhúsabyggðin er með öryggishliði og myndavélum. Tíu mínútna akstur er á Laugarvatn, Selfoss ekki langt frá og aðeins um klukkustund frá Reykjavík.

Nánari upplýsingar veitir Árni Þorsteinsson Rekstrarhagfræðingur M.Sc. Löggiltur fasteigna- og skipasali Löggiltur leigumiðlari, í síma 8983459, tölvupóstur arni@fmg.is og Sigrún Stella Einarsdóttir Löggiltur fasteigna- fyrirtækja og skipasali í síma 824-0610, tölvupóstur stella@fmg.is

Kort af Langirimi 22

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu