Furuholt
01-0101 · 641 Húsavík



413 dagar á sölu
62.900.000 kr
840.909 kr/m²
Furuholt - Fallegt 74,8 m² sumarhús/heilsárshús á 14.264 m² eignarlóð rétt við Vestmannsvatn í Þingeyjarsveit.
Húsið var byggt árið 2010 og er skráð 74,8 m² að stærð auk svefnlofts og geymsluskúrs.
Húsið er timburhús á steyptri plötu og er gólfhiti á allri neðri hæðinni.
Húsið skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, sólstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og svefnloft sem er yfir um helming hússins.
Forstofa er með flísum á gólfi og hvítum skáp. Timbur stigi er úr forstofunni og upp á svefnloftið.
Eldhús og stofa eru í opnu rými þar sem flísar eru á gólfum og loft tekin upp. Í eldhúsi er hvít sprautulökkuð innrétting með góðu skápa- og bekkjarplássi. Úr stofunni er hurð inn í sólstofu sem er með flísum á gólfi, gluggum til þriggja átta og tveimur hurðum út á verönd.
Svefnherbergin tvö, bæði með flísum á gólfi og hvítum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, ljós innrétting, upphengt wc, sturta með glerhurðum og opnanlegur gluggi. Tengi eru fyrir þvottavél inn á baðherberginu.
Svefnloft er yfir um helming hússins og þar er harð parket á gólfum.
Annað
- Timbur verönd er með öllum hliðum hússins. Heiturpottur/skel er á veröndinni.
- Geymsluskúr, einangraður er við hliðina á húsinu. Þar eru hillur, stýrikerfi fyrir pottinn og aðstaða fyrir þvottavél.
- Hitaveita er í húsinu.
- Gróin og falleg eignarlóð á fallegum stað rétt við Vestmannsvatn.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna



























