HÚSASJÁ

Kliftröð 4

01-0101 · 262 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
7 myndir

567 m²

Stærð

2

Baðherbergi

1952

Byggingarár

2035 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður



178 dagar á sölu

sell

120.000.000 kr

211.566 kr/m²

Sunna fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna Kliftröð 4, 262 Reykjanesbæ.

***SELJENDALÁN ER Í BOÐI***

**LÆKKAÐ VERÐ**

Um er að ræða 567,2 fm atvinnuhúsnæði á Ásbrú. Eignin skiptist í tvo sali; annar er 387,8 fm og hinn er 165 fm. Þá er tæknirými alls 14,4 fm. Geymsluloft er yfir stærri hlutanum og er óskráð en telur um 160 fm.

Lofthæð í stærri salnum er ca. 6,35 m, og innkeyrsluhurð er 3,65 m á breidd og 3,8m á hæð.

Lofthæð í minni salnum  er ca. 3,50 m, og innkeyrsluhurð er 3,60 m á breidd og  3m á hæð.

Eignin var einangruð að utan og klædd með bárujárni/alúzink fyrir um 12-15 árum og er hún vel einangruð. Þak var yfirfarið fyrir nokkrum árum en þarfnast skoðunar. Þegar eldgosahrinan hófst á Reykjanesskaga var sett upp "loft í loft" kerfi í báða salina til að halda hita á húsinu.

Eignin er i góðu standi og er með salernum og vöskum, lítilli skrifstofu/móttökusvæði og hentar því í margskonar rekstur.

Brunabótamat er kr. 164.650.000.

Vinsamlegast bókið skoðun.

Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs. í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Kort af Kliftröð 4

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7