HÚSASJÁ

Karlsbraut 20

01-0201 · 620 Dalvík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
9 myndir

146 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1954

Byggingarár

801 m²

Lóð

Sérinngangur

Bílskúr



11 dagar á sölu

sell

43.900.000 kr

300.891 kr/m²

Karlsbraut 20 – Dalvík

Glæsileg og afar vel skipulögð 3ja herbergja efri hæð í tvíbýlishúsi með rúmgóðum 40,2 m² bílskúr og helmingshlut í gróðurhúsi. Heildarstærð eignar er 145,9 m².

Hér er um að ræða bjarta og notalega eign á góðum stað á Dalvík þar sem rými og skipulag nýtast einstaklega vel. Stofan er rúmgóð með gluggum til tveggja átta sem tryggja mikla birtu og fallegt útsýni. Eldhús er með borðkrók við vesturglugga og notalegu andrúmslofti. Tvö góð svefnherbergi eru í eigninni og baðherbergið er flísalagt með hornbaðkari og sturtu.

Útgengt er á sólríkar suðvestursvalir.

Bílskúrinn er sérlega rúmgóður með lökkuðu gólfi, rafdrifinni hurð og aðstöðu fyrir þvottavél. Hellulagt bílastæði er fyrir framan skúrinn. Á baklóð er gróðurhús með steyptu gólfi sem fylgir að hálfu – frábært fyrir garðáhugafólk.

Þak var yfirfarið og málað fyrir um 5 árum og loftplata er steypt.

Falleg og vönduð eign sem vert er að skoða.Allar frekari upplýsingar veitir

Arnar  773 5100  arnar@fastak.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því

væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Karlsbraut 20

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9