HÚSASJÁ

Hlíðarendi 9

01-0101 · 203 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
37 myndir

131 m²

Stærð

1

Baðherbergi

2009

Byggingarár

600 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir



54 dagar á sölu

sell

56.900.000 kr

431.715 kr/m²

Vandað og mjög rúmgott 12 hesta hesthús með rúmgóðum eins og tveggja hesta stíum með stóru sérgerði við Hlíðarenda 9 Kópavogi á svæði hestamannafélagsins Spretts. Húsið er mjög vel staðsett og stutt í Reiðhöllina.

Hesthúsið er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands allts 131,8 fm á einum grunnfleti.

Húsið er viðhaldslétt og klætt að utan. Húsið er parhús (tvær einingar) og er þetta stærri einingin í húsinu. Mikil lofthæð er í húsinu og vandaðar stíur. Rúmgóð hlaða með innkeyrsludyrum. Húsið er vélmokað. Góð hnakka og reyðtygjageymsla, góð búningsaðstaða sem og góð snyrting, björt og rúmgóð kaffistofa. Útgengt er úr kaffistofunni út á stétt við gerðið. Malbikuð bílastæði og pláss fyrir hestakerru meðfram húsinu.  Allt sér.  Hiti í gólfum. Gúmmímottur á  gangi. Hitaveita.

Gerðið er afar rúmgott, fínt aðgengi er að húsinu. Fín vifta er í hesthúsinu. Rúmgóður fóðurgangar, gott pláss til að leggja á og járna. Stórt sérgerði. Allt sér.

Þetta er mjög vandað og gott hesthús til að skoða, er á besta stað í Spretti, stutt í reiðhöllina ofl.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.isForsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Hlíðarendi 9

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð