Kýrholt 2
Lóð · 311 Borgarnesi



55 dagar á sölu
1.650.000 kr
279 kr/m²
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE) kynnir til sölu Kýrholt 2 – Sumarhúsalóð í Galtarholti, 311, Borgarbyggð.Lóðarstærð: 5.919 m²Landnúmer: L201417Frístundarsvæði sem nær yfir 276,5 ha
Falleg og vel staðsett sumarhúsalóð í frístundabyggðinni Galtarholti, aðeins rúmlega klukkustund frá Reykjavík. Lóðin er í kyrrlátu og grónu umhverfi í holtadragi milli Grafarflóa og Múrhlíðar, með góðu aðgengi eftir Kýrholti. Svæðið er skipulagt fyrir frístundabyggð og býður upp á fjölbreytt útivistartækifæri og nálægð við náttúrufegurð Vesturlands.
Lóðin er óbyggð og hentar vel þeim sem vilja reisa sitt eigið sumarhús samkvæmt gildandi skipulagi Galtarholts, sjá deiliskipulag á skipulagsstofnun.is.
Markmið deiliskipulags er:að mynda frístundabyggð sem fellur vel að umhverfinu með aðgengi að fjölbreyttri útivistað mannvirki, lóðamörk, vegir, bílastæði, göngustígar og reiðleiðir séu ein lítið áberandi og frekast er kosturað röskun á landi verði í lágmarkiað tryggja gott aðgengi gangandi fólks um skipulagssvæðiðað auka ferðaþjónustu og útivistarmöguleika á svæðinu
Helstu kostir:Skipulagt frístundasvæði í fallegu hraun-, kjarr, og holtalandslagiGólfvöllur og ýmis þjónusta samkvæmt samþykktu deiliskipulagiMiklir möguleikar varðandi veiðileyfi og hestamennskuGóð aðkoma og greiðfærir vegirNálægt Borgarnesi og fjölbreyttri þjónustu og afþreyingu
Landið er leigulóð og selst í því ástandi sem það er við skoðun og afhendist við kaupsamning. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá FSRE eða með því að senda tölvupóst á eignasala@fsre.is eða gera tilboð hér Fasteignasala og leiga | FSRE
Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir FSRE allan nauðsynlegan aðgang til þess

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna