HÚSASJÁ

Hallkelshólar

01-0101 · 805 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
32 myndir

155 m²

Stærð

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2008

Byggingarár

10000 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Heitur pottur



372 dagar á sölu

sell

120.000.000 kr

772.698 kr/m²

CROISETTE - KNIGHT FRANK kynnir í einkasölu fallegt sumarhús ásamt gestahúsi að Hallkelshólum 119, Grímsnes- og Grafningshreppi. Húsið er skráð 131,3 fm og skiptist í stórt anddyri, stofu, borðstofu og eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Gestahúsið er skráð 24 fm. Stór timburverönd með skjólveggjum, heitum og köldum potti ásamt infrarauðri sauna. Allar nánari upplýsingar veitir Karl Lúðvíksson Lfs í s: 663-6700 eða kalli@croisette.is og Elín Auður Traustadóttir í s: 858-0978 eða elin@croisette.is

SMELLTU HÉR TIL AÐ FA SÖLUYFIRLIT

Nánari lýsing:

Anddyri: Komið er inn í rúmgott anddyri með góðu skápaplássi, útgengi út á verönd um rennihurð.

Stofa/borðstofa: Stofa og borðstofa eru í opnu rými með eldhúsi. Gólfsíðir gluggar með útgengi út á verönd. Arinn er í stofu.

Eldhús: Eldhúsinnrétting með granítborðplötu er í eldhúsinu. Gashelluborð og ofn í eyju.

Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi. Flísar á gólfum.

Baðherbergi:  Góð innrétting með steinborðplötu og vaski, flísalagður sturtuklefi, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengt er á verönd úr baðherbergi.

Öll gólf aðalhússins eru flísalögð með gólfhita með nýju hitastýringakerfi. Allar innréttingar eru frá Agli Árnasyni. Nýjar hvítar innihurðir. Húsið hefur nýlega verið málað bæði að utan og innan.

Gestahúsið er byggt úr timbri árið 2011. Nýlegt harðparket er á gólfi ásamt gólfhita. Á baðherberginu er upphengt salerni, innrétting með vaski og nýlegur sturtuklefi.

Grunnflötur hússins er 120,7 fm auk 10,6 fm geymslu í kjallara og frístandandi 24,0 fm gestahús alls 155,3 fm. Húsið er byggt árið 2008 úr timbri og er klætt að utan með standandi og liggjandi bandsagaðri furu. Á þaki er litað járn. PVC gluggar eru í húsinu. Steyptur sökkull og gólfplata. Gólfhitalagnir með stýringum. Undir hluta hússins er 10,6 fm steinsteypt geymsla. Þar er lagnakerfi hússins. Stór nýr hitakútur fyrir neysluvatn.

Veröndin er á tveimur pöllum sem tengir saman húsið og gestahúsið. Á efri pallinum er rafmagnsheitapottur, kaldur pottur, infrarauð saunatunna og grillskýli. Á neðri pallinum er hlaðið eldstæði. Á veröndinni er lýsing og útihátalarar. Veröndin er rúmlega 300 fm. Bílaplanið er stórt malarborið með lýsingu. Lóðin er um 10.000 fm leigulóð. Virkt sumarhúsafélag er á svæðinu. Rafmagnshlið er inn í hverfið.

Nánari upplýsingar veita:

Karl Lúðvíksson í síma 6636700, tölvupóstur kalli@croisette.is.

Elín Auður Traustadóttir í síma 858-0978 eða elin@croisette.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.

- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Kort af Hallkelshólar

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32