Norðurvegur 7
01-0104 · 630 Hrísey



124 dagar á sölu
33.900.000 kr
471.488 kr/m²
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Norðurvegur 7-9 Hrísey - Mikið endurnýjuð og skemmtileg 3ja herbergja íbúð. suður endi - stærð 71,9 m²
** Virkileg skemmtileg eign sem hefur verið vel viðhaldið **
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Forstofa er með flísum á gólfi, tvöföldum skáp og "handklæðaofni". Hiti er gólfi.
Eldhús, eikar innrétting með grárri bekkplötu og flísum á milli skápa. Uppþvottavél er innfelld í innréttingu og fylgir með við sölu eignar. Nýleg blöndunartæki.
Stofa er með harð parketi á gólfi og glugga til vesturs.
Svefnherbergin eru tvö, hjónaherbergi með harð parketi á gólfi og þreföldum eikar fataskáp og barnaherbergi, þar er harð parket á gólfi og hurð til suðurs út á verönd.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, eikar innrétting, upphengt wc, handklæðaofn og hlaðin og flísalögð sturta. Hiti er í gólfi og opnanlegur gluggi. Nýleg blöndunartæki.
Þvottahús er með flísum á gólfi og eikar innréttingu með skolvask og stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Vélrænt útsog.
Steypt verönd er með allri suður- og austurhlið íbúðarinnar og skjólveggir er steyptir og með timburklæðningu. Vandaður rafmagnspottur er á veröndinni og fylgir með við sölu.
Annað
- Eignin var standsett á árunum 2008-2010. Ný einangrun, nýjar lagnir, gluggar, útidyrahurðar, innréttingar o.fl.
- Nýtt harð parket var lagt á íbúðina árið 2017.
- Hitalagnir eru í hluta verönd sem er með suðurhlið hússins.
- Geymsluskúr er á suðurveröndinni.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna




















