HÚSASJÁ

Bjarkavellir 1B

02-0501 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
27 myndir

72 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2014

Byggingarár

8446 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



172 dagar á sölu

sell

63.900.000 kr

887.500 kr/m²

Bókið skoðun - Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali s. 659-0510 eða glodis@hraunhamar.is

Hraunhamar fasteignasala kynnir fallega þriggja til fjögurra herbergja endaíbúð á efstu hæð í góðu lyftufjölbýli vel staðsett við Bjarkavelli 1B í Hafnarfirði. Sér inngangur af svölum. Stutt er í alla helstu þjónustu, verslun, skóli og leikskóli, líkamsrækt, sundlaug og fleira. Íbúðin getur verið laus fljótlega.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Skipting eignarinnar: Forstofa, hol, stofa, borðstofa, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymsla og svalir. Auk þess er sameiginlegt þvottahús á hæðinni.

Nánari lýsing eignarinnar:

Flísalögð forstofa með fataskápum.

Björt stofa og borðstofa og þaðan er utangegnt út á rúmgóðar svalir.

Eldhús með smekklegri innréttingu, flísar á milli skápa og led-lýsing undir eldhússkápunum.

Flísalegt baðherbergi með innréttingu, sturtuklefa og handklæðaofn.

Fínt hjónaherbergi með fataskápum.

Barnaherbergi með fataskáp.

Geymsla með glugga, væri möguleiki að nýta sem herbergi e.t.v.

Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús, fyrir íbúa þessarar hæðar og hver er með stæði fyrir þvottavél og þurrkara.

Í kjallara er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Gólfefni eru harðparket og flísar.

Næg bílastæði við húsið og sameiginlegur garður/leiksvæði á bak við húsið.

Þetta er falleg íbúð, vel staðsett, stutt í þjónustu, matvöruverslanir, skóla, leikskóla, Ásvallalaug og íþróttasvæði Hauka.

Nánari upplýsingar veitir Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 eða glodis@hraunhamar.is

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 3.800 af hverju skjali.

3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983

Hraunhamar, í fararbroddi í 40 ár. – Hraunhamar.is

Kort af Bjarkavellir 1B

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu
Bjarkavellir 1B, 02-0501 | Húsasjá