HÚSASJÁ

Vörðhólsvegur 5

01-0101 · 806 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

80 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

2008

Byggingarár

5242 m²

Lóð

Garður

Svalir



702 dagar á sölu

sell

39.500.000 kr

488.257 kr/m²

Um er að ræða Sumarhús í landi Úthlíðar í Biskupstungum, birt stærð 80,9m2 bjálkahús frá Kanada með millilofti, álgluggum og lituðu bárujárni á þaki, byggt árið 2008.

Gengið er inn á vesturhlið hússins.

Komið er inn í hol þaðan sem gengið er í öll rými hæðarinnar.

Stigi upp á risloft sem er með töluverðri lofthæð og góðum gluggum.

Tvö svefnherbergi með skápum og þá er mögulegt að nýta risið sem svefnloft.

Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu rými. Í eldhúsi er viðarinnrétting, með keramikhelluborði og bakaraofni.

Úr stofu er útgengt út á pall og lóðin nýtur sólar frá morgni til kvölds.

Baðherbergi með glugga, innréttingu, sturtuklefa og upphengdu salerni.

Neðri hæðin er parketlögð að mestu en flísar eru á baðherbergis- og eldhúsgólfi.

Lóðin er 5.242 fm leigulóð.

Útigeymsla er á vesturhlið hússins. Gott bílastæði er við húsið

Innbú fylgir samkvæmt nánara samkomulagi, annað en persónulegir munir.

Úthlíð í Biskupstungum er u.þ.b. klst. akstur frá Reykjavík, á svæðinu er 9 holu golfvöllur og stutt á fleiri golfvelli í nágrenninu t.d. á Geysi og Flúðum. Sumarbústaðarfélag á svæðinu og er svæðið lokað fyrir almenna umferð með símahliðum. Að auki er veitingastaður og tjaldsvæði á svæðinu. Örstutt í ósnorta og margar gönguleiðir í boði.

Leiðarlýsing: Ekið að hliði nr. 2 til hægri. Guðjónsgata á vinstri hönd, aka hana út í enda þá til hægri. Bústaðurinn er efsti bústaður á vinstri hönd. Sjá kort af svæðinu hér: https://www.uthlid.is/kort-af-svaedinu Sjá hér: https://www.uthlid.is

Lóð nr. 4 er í eigu sama aðila, á henni er steypt plata með hitalögn. Möguleiki að fá hana keypta.Nánari upplýsingar veita Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og löggilltur fasteignasali kristo@olafur.is s: 416-2223, gsm: 695 6134 eða Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali oli@olafur.is - s: 416 2220 - gsm: 894 3209

Kort af Vörðhólsvegur 5

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð