HÚSASJÁ

Selás 5

01-0101 · 260 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
55 myndir

311 m²

Stærð

4

Herbergi

6

Svefnherbergi

4

Baðherbergi

2008

Byggingarár

765 m²

Lóð

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



210 dagar á sölu

sell

149.900.000 kr

481.994 kr/m²

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:

Selás 5, 260 Reykjanesbær, birt stærð 311.0 fm.

Rúmgott fjölskylduhús sem býður upp á fjölbreytta möguleika. Húsið er steinað að utan og prýtt stórum svölum sem gefa því fallegt yfirbragð.

Lóðin er grófjöfnuð, hellulagt bílaplan og útigeymslur til staðar en enn svigrúm til að útfæra garðinn að eigin smekk. Útsýni.

***Húsið samanstendur af þremur íbúðum og rúmgóðum bílskúr sem gefur frábært tækifæri fyrir stórar fjölskyldur, fjölskyldur með eldri börn sem vilja eigin rými, eða sem fjárfestingarkostur með möguleika á leigutekjum.

Húsið er steinað að utan og með  stórum svölum og lóðin er grófjöfnuð . Allir veggir eru hlaðnir og pússaðir í íbúðunum og gólfin eru flísalögð og með gólfhita.

Íbúð 1.  155m2,  Er á efri hæð er með inngangi á mót austri og 3 útgöngum út á svalir og baklóð.

Eignin telur forstofu, borðstofu, eldhús, sjónvarpshol, stofu, sólstofu, þvottahús sem er með auka salerni og þrjú svefnherbergi.

Hátt er til lofts í íbúðinni.

Flott útsýni er yfir Fitjarnar og Faxaflóann, góðar göngu og hjólabrautir, tvær stætóstöðvar við hverfið og verslunarkjarni í göngufæri.

Íbúð 2. 75m2, Er á neðri hæð með sérinngangi í austur og útgengt út á hellulagða verönd í suður auk þess er innangengt í stigahús og bílskúr.

Forstofa, eldhús ,stofa og borðstofa er opið rými auk tveggja svefnherbergja og baðherbergis með þvottaaðstöðu.

Íbúð 3.  35m2, Er stúdíóíbúð með sérinngangi í norður  og útgengt út á grófjafnaða lóð sem er í suður auk þess er innangengt í bílskúr.

Svefnaðstöðu og stofu, úr stofu er innangengt í eldhús.

Baðherbergi er með þvottaaðstöðu.

Bílskúrinn er  rúmgóður og er 47,2m2 og með gönguhurð við hlið bílhurðar.

Geymsla er undir útitröppum og útigeymsla  í baklóð í inngröfnum gám.

Nánari upplýsingar veitir/veita: Halla Vilbergsdóttir Nemi til löggildingar fasteignasala, í síma 7727930, tölvupóstur halla@allt.is

Páll Þorbjörnsson löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:

Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði

Kostnaður kaupanda:

1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.

2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.

3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.

4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.

5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Kort af Selás 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50Mynd 51Mynd 52Mynd 53Mynd 54Mynd 55