HÚSASJÁ

Aflakór 18

01-0101 · 203 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
69 myndir

341 m²

Stærð

5

Herbergi

6

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

2011

Byggingarár

824 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur

Auka íbúð



242 dagar á sölu

sell

270.000.000 kr

792.719 kr/m²

Fasteignasalan TORG kynnir: Virkilega glæsilegt einbýlishús með fallegu útsýni og auka íbúð við Aflakór 18, 203 Kópavogi.  Húsið er skráð 340,6 fm en til viðbótar er óskráð rými um 55 fm sem nýtist sem sjónvarpsherbergi og heima rækt / tómstundarherbergi, samtals um 395,6 fm. Á lóðinni er fallegt útisvæði með heitum potti, verönd, útigeymslum og opnu grænu svæði. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali í síma: 767-0000 eða darri@fstorg.is

Nánari lýsing:

Efri hæð: Gengið er inn á efri hæð hússins. Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskápum. Úr forstofu er innangent inn í þvottahús og þaðan inn í 34,3 fm bílskúr. Þvottahúsið er með ljósri innréttingu með skolvask. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara undir borðplötu. Alrýmið er mjög opið og bjart með stórbrotnu útsýni allt frá Móskarðshnúkum til Snæfellsjökuls. Alrýmið rúmar stofu, borðstofu og opið eldhús. Frá stofu er gengið út á virkilega falleg verönd og sólpall til suðurs og vesturs. Rúmgóð útigeymsla er á veröndinni. Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu og eyju sem hægt er að sitja við, borðplatan er úr ljósum stein. Eldhúsið er með tveimur bakaraofnum, helluborði, tvöföldum ísskáp með innbyggðum vínkælir og uppþvottavél. Tvö svefnherbergi eru á efri hæðinni, annað þeirra er hjónaherbergið með fataherbergi. Hitt svefnherbergið er mjör rúmgott með fataskáp. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, bæði með baðkari og sturtu, upphengdu salerni, fallegri dökkri innréttingu með handlaug og borðplötu úr stein.

Neðri hæð: Gengið er niður opin og bjartan stiga með hertu gleri á neðri hæð hússins. Þar eru þrjú rúmgóð svefnherbergi. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með upphengdu salerni, sturtu og dökkri innréttingu með handlaug. Stórt óskráð rými sem nýtt er í dag fyrir sjónvarpsherbergi og heima rækt / tómstundarherbergi er um 55 fm. Útgengt er út í bakgarð frá miðrými á neðri hæð. Í bakgarðinum er stórt afgirt grænt svæði og heitur pottur á steyptri verönd.

Auka íbúð: Gengið er meðfram húsinu austan megin og inn um sér inngang á neðri hæð inn í auka tveggja herbergja íbúð. Alrýmið rúmar eldhús og stofu/borðstofu. Eldhúsið er með ljósri innréttingu og fylgir með bakaraofn, helluborð, innbyggð uppþvottavél og þvottavél í eldhúsi. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með sturtu, upphengdu salerni og ljósri innréttingu með handlaug. Svefnherbergið er mjög rúmgott.

Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali í síma: 767-0000 eða darri@fstorg.is

Kort af Aflakór 18

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50Mynd 51Mynd 52Mynd 53Mynd 54Mynd 55Mynd 56Mynd 57Mynd 58Mynd 59Mynd 60Mynd 61Mynd 62Mynd 63Mynd 64Mynd 65Mynd 66Mynd 67Mynd 68Mynd 69