HÚSASJÁ

Litlikriki 47

01-0101 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
45 myndir

260 m²

Stærð

4

Herbergi

6

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

2008

Byggingarár

445 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Hleðslustöð

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



287 dagar á sölu

sell

159.900.000 kr

615.237 kr/m²

FASTEIGNASALAN TORG KYNNIR: Hátt til lofts og vítt til veggja! Einkar glæsilegt, rúmgott og vel skipulagt  8 herbergja parhús á tveimur hæðum í fjölskylduvænu hverfi í Mosfellsbæ þaðan sem stutt er í alla þjónustu, þ.m.t. skóla, leikskóla, íþróttahús og stórmarkað. Sjá video hér

Húsið skiptist í stórt eldhús, 6 svefnherbergi, 3 baðherbergi og svo allt annað sem stór og mikil hús prýða. Brúnás innréttingar, hágæða tæki og parket-flísar á öllum gólfum (nema þar sem annað er tekið fram). Milliloft í stofu. Gólfhiti. Innangengt í 38,1 fm bílskúr (innifalið í heildarfermetratölu) með tvöfaldri rafstrýrðri hurð og geymslu innaf. Hitalögn í stétt fyrir framan. Tvennar svalir og eru suðursvalirnar 27,5 fm. Hitalögn í stétt fyrir framan húsið og tekur stæðið allt upp í 7 bíla og bakgarður er hellulagður og steypur. Þarfnast lítillar fyrirhafnar.

Seljendur eru reiðubúnir að taka 4ra herbergja íbúð í Mosfellsbæ upp í kaupin.

Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is

Nánari lýsing: Húsið er forsteypt og er byggt 2008, staðsett í nýlegu, afar vinsælu og fjölskylduvænu hverfi. Á neðri hæð er forstofa, þaðan sem innangengt er í baðherbergi annars vegar og bílskúrs hins vegar. Þá tekur við forstofuhol umkringt tveimur svefnherbergjum,  sjónvarpsholi  og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Úr forstofuholi liggur breiður og góður stigi upp á aðra hæð (geymsla undir stiga) þar sem er mikil lofthæð, innfelld lýsing, stórt opið eldhús með útgengi á 27,5 fm suðursvalir, stofa/borðstofa og innaf stofu eru tvö svefnherbergi. Úr stofu liggur stigi upp í enn annað rými, nokkurs konar milliloft,  sem nýta má sem skrifstofu eða jafnvel enn eitt herbergið. Þá er hjónaherbergið á þessari hæð með fataherbergi og baðherbergi innaf, auk annars svefnherbergis.

Neðri hæð:

Forstofa:  Rúmgóð með skóskáp. Forstofuhol með fataskáp. Stigi úr forstofuholi liggur upp á efri hæð.

Baðherbergi 1: Flísalagt í hólf og gólf með innréttingu við vask, „walk-in“ sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni.

Svefnherbergi 1 og 2: Bæði rúmgóð með fataskápum.

Baðherbergi 2: Flísalagt í hólf og gólf með hornbaðkari. Miklar innréttingar, bæði fyrir ofan og neðan við vask og í kringum þvottavél og þurrkara. Þá eru einnig skápar á veggnum á móti. Upphengt salerni og handklæðaofn. Útgengt út í bakgarð.

Sjónvarpshol: Mjög rúmgott með sérsmíðuðum hillum yfir heilan vegg, sem fylgja.

Efri hæð – mikil lofthæð, innfelld lýsing:

Eldhús: Mjög rúmgott og opið inn í stofu. Dökkar viðarinnréttingar með quarts borðplötu og hvítri háglans eyju, einnig með quarts borðplötu, gefa eldhúsinu glæsilegt yfirbragð. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð (og fylgja), 2 ofnar í vinnuhæð og spam helluborð með háf úr stáli. Útgengi á 27,5 fm suðursvalir með fallegu útsýni.

Stofa/borðstofa: Ágætlega rúmgóðar og opnar inn í eldhús. Stigi upp á milliloft sem nú er nýtt sem skrifstofa. Teppi á gólfi. Innaf stofu eru tvö svefnherbergi.

Svefnherbergi 3 og 4 (innaf stofu): Ágætlega rúmgóð með fataskápum.

Svefnherbergi 5: Einnig á efri hæð, 12 fm með fataskáp.

Hjónaherbergi (6. svefnherbergið): 12 fm en með auka 3,2 fm fataherbergi innaf. Útgengt út á suðursvalir, þær sömu og úr eldhúsi.

Baðherbergi: Innaf hjónaherbergi með sturtu, lítilli innréttingu við vask og upphengdu salerni. Geymslurými yfir baðherbergi.

Gólfefni: Gólfhiti er í öllu húsinu og á öllum gólfum eru fallegar ljósar parketflísar (nema þar sem annað er tekið fram.

Bílskúr: Sérlega rúmgóður enda 38,1 fm. Með 5,5 m breiðri innkeyrsluhurð. Innaf bílskúr (sem á teikningu er skráð geymsla) er nú búið að innrétta vinnuherbergi.

Garður: Fyrir framan húsið er stétt með hitalögn sem rúmar allt að 7 bíla. Þá tekur við steypt stétt og þar innaf hellulagður garður með körfuboltaaðstöðu. Geymsluskúr. Allur garðurinn er fyrirhafnarlítill.

Hér á gamla góða setningin „sjón er sögu ríkari“ einstaklega vel við. Myndir gefa góða sýn á einstök rými, lýsing segir frá smáatriðum og teikningar hjálpa við að sýna hvar hvað er. En ekkert af þessu gefur þá heildarmynd sem fæst við það að skoða húsið með eigin augum. Verið velkomin að skoða þetta glæsilega hús.

Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 837-8889 eða hjá jóhanna@fstorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari

ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Litlikriki 47

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45