HÚSASJÁ

Skógarbraut 918C

01-0315 · 262 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
7 myndir

71 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1978

Byggingarár

3844 m²

Lóð



138 dagar á sölu

sell

46.900.000 kr

659.634 kr/m²

Í sölu hjá Eignasölu –  íbúð mikið endurnýjuð árið 2023

Eignasala kynnir til sölu fallega og vel við haldna íbúð sem var mikið endurnýjuð árið 2023.

Harðparket á gólfum er frá Parka, sem og hurðir.

Baðherbergi var endurnýjað árið 2023, þar eru flísar frá Byko og innrétting frá Parka.

Í eldhúsi eru ný heimilistæki og sérsmíðuð innrétting frá Parka.

Rafmagn var endurnýjað árið 2023, þar á meðal rofar, tenglar og rafmagnstöflur.

Einnig var skolp út fyrir sökkul endurnýjað, ásamt því að neysluvatnslagnir, ofnalagnir og ofnar voru skipt út.

Íbúðin var máluð árið 2023

Gluggar og svalahurðir voru endurnýjaðar árið 2023, og svalir eru einnig nýjar.

Blokkin var máluð að utan sumarið 2023.

Nánari lýsing – íbúð 315

Stofa með parketi á gólfi og útgengi á svalir.

Sjónvarpahol með parketi á gólfi.

Eldhús með parketi og nýrri, fallegri innréttingu frá Parka ásamt helluborði, ofni, háf, ísskáp og uppþvottavél.

Tvö svefnherbergi, bæði með parketi og fataskápum.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta.

Nýleg hvít innrétting, speglaskápur með LED-lýsingu að neðan, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta.

Hreinlætistæki eru frá Byko, og aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara.

Seljandi

Eignasala

Nánari upplýsingar veitir:

Eignasala – Hafnargata 90a

Sími: 420 6070

Netfang: julli@eignasala.is og joi@eignasala.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.

Kort af Skógarbraut 918C

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð