HÚSASJÁ

Skógarbraut 916C

01-0309 · 262 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
14 myndir

126 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1978

Byggingarár

3841 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



180 dagar á sölu

sell

49.900.000 kr

395.404 kr/m²

Valhöll fasteignasala og Gylfi Þór kynna fimm herbergja íbúð við Skógarbraut 916C Ásbrú Reykjanesbæ.

Frábært fermetraverð 396.000 kr og athugið fasteignamat eignar er 55.600.000 kr. Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls

123,9fm og þar af er geymsla 4,8fm.

Eignin skiptist í stofu, eldhús, hjónaherbergi, fjögur  herbergi, tvö baðherbergi, gang, sérgeymsla og þvottahús eru í sameign. Gluggar á þrjá vegu. Húsið er nýmálað að utan.

Nánari lýsing:

Anddyri með parketi á gólfi.

Stofa/borðstofa björt og rúmgóð með  á gólfi.

Eldhús með nýlegri fallegri innréttingu með helluborði, ofni  og parket á gólfi.

Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Innan af hjónaherbergi er baðherbergi með nýlegri innréttingu, innangendri sturtu og flísum á gólfi.

Svefnherbergin 4 eru rúmgóð með fataskáp og parketi á gólfi.

Baðherbergin eru tvö  með baði og sturtu í baðinu,  Hreinlætistæki voru endurnýjuð árið 2018 og er frá Byko.

Geymsla er á jarðhæð hússins.

Þvottahús er í sameign á hæð íbúðar.

Blokkin var sprunguviðgerð að utan árið 2018

Sameign er mjög snyrtileg, á gólfum eru nýleg gólfefni.

Nýlega endurnýjað hitaveitu ofna og lagnir þar sem þess þurfti, allar ofnlagnir voru úr eir og eru þær heillegar.

Neysluvatnslagnir voru endurnýjaðar árið 2018 og frárennsli að plötu 1. hæðar.

Blokkin var öll máluð að utan sumarið 2025.

Nánari upplýsingar veitir:

Gylfi Þór Gylfason s. 7704040 löggiltur fasteignasali eða á gylfi@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Skógarbraut 916C

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu