HÚSASJÁ

Skógarbraut 914

01-0104 · 262 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

123 m²

Stærð

4

Herbergi

1978

Byggingarár

4286 m²

Lóð

Geymsla

Þvottahús



32 dagar á sölu

sell

53.900.000 kr

439.641 kr/m²

Rúmgóð og björt fimm herbergja íbúð á jarðhæð með sérafnotareit 122,6fm. og þar af er geymsla að Skógarbraut 914 í Reykjanesbæ. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.  Eignin skiptist í stofu, eldhús, hjónaherbergi, þrjú herbergi, tvö baðherbergi, gang, sérgeymsla og þvottahús eru í sameign.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 122,6 fm og þar af er geymlsa skráð 2,6 fm.

*Myndir í auglýsingu eru af sambærilegri eign í húsinu*

Nánari lýsing:

Anddyri með harðparketi á gólfi.

Stofa/borðstofa björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi. Útgengt er úr stofunni út í garð en sérafnotareitur fylgir eigninni.

Eldhús með nýlegri innréttingu með helluborði, ofni, háf, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingunni, tengi fyrir uppþvottavél og parket á gólfi.

Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Innan af hjónaherbergi er baðherbergi með nýlegri innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu og flísum á gólfi.

Svefnherbergin 3 eru rúmgóð með fataskáp og parketi á gólfi.

Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, nýleg innrétting og  flísum á gólfi og hluta veggja.  Hreinlætistæki voru endurnýjuð árið 2018 og er frá Byko.

Geymsla er á jarðhæð hússins.

Þvottahús er í sameign á hæð íbúðar þa rsem hver íbúð er með sitt tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Eignin var endurnýjuð töluvert 2018:

Eldhús og baðinnréttingar endurnýjaðar ásamt því að baðherbergi var flísalagt að hluta.

Rafmagn hefur verið endurnýjað að hluta og rafmangstafla endurnýjuð.

Skipt var um ofna og ofnalagnir yfirfarnar og lagaðar eftir því sem þurfti.

Skipt var um frárennsli að plötu 1. hæðar.

Blokkin hefur verið sprunguviðgerð og verður máluð í vor að utan á kostnað seljanda.

Skógarbraut í Reykjanesbæ er íbúðarhúsnæði á þremur hæðum, 8 íbúðir eru í hverjum stigagangi og hefur húsið fengið gott viðhald í gegnum árin.

Íbúðirnar eru á Ásbrú sem er ört stækkandi samfélag á Suðurnesjum og stutt er í alla þjónustu og skóla. Einungis er um 30-40 mínútna akstur frá Reykjavík.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Skógarbraut 914

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu