HÚSASJÁ

Laxatunga 31

01-0101 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
41 myndir

244 m²

Stærð

4

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2008

Byggingarár

442 m²

Lóð

Sérinngangur

Svalir

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur



298 dagar á sölu

sell

156.900.000 kr

643.296 kr/m²

CROISETTE - KNIGHT FRANK kynna í einkasölu fallegt og vel skipulagt 243 fm endaraðhús í Laxatungu 31 í Leirvogstunguhverfinu í Mosfellsbæ.  Húsið er með fimm svefnherbergjum, góðum bílskúr, tveimur baðherbergjum og stórum skjólsælum lokuðum garði með palli, heitum og köldum pott. Aukin lofthæð er á efri hæð sem gerir rýmið sem saman stendur af opnu eldhúsi, borðstofu og stofu einstaklega bjart.  Þetta er rólegt og fjölskylduvænt hverfi, stutt í útivist, gott skóla og íþróttastarf og öll þjónusta Mosfellsbæjar í aðeins tveggja mínútna akstursfjarlægð.  Nánari upplýsingar veitir Karl Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í síma 663-6700, tölvupóstur kalli@croisette.is.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3-D

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT

Nánari lýsing á efri hæð:

Forstofa: Góð forstofa með tvöföldum skáp og skóskáp. Basalt flísar á gólfi. Innangengt er í 25 fm bílskúr úr forstofu. Bílskúrshurð er með fjarstýrðum hurðaopnara. Basalt flísar á gólfi í bílskúr.

Eldhús:  Opið og rúmgott eldhús með góðu skápaplássi, innrétting frá IKEA og JBB, eyja með útdraganlegum skápum, gaseldavél, ofni og grill/örbylgjuofni, vínkæli og innbyggðum ísskáp. Kashmis white granít í borðplötu á eyju og eldhúsborðplötu. Harðparket á gólfi.

Stofa/borðstofa: Bjart og opið rými, útgengt út á sólríkar vestursvalir, hvítir veggfastir skápar, harðparket á gólfi.

Barnaherbergi: Rúmgott og bjart barnaherbergi með skápum. Harðparket á gólfi.

Baðherbergi: Gott gesta baðherbergi, með steinlagðri sturtu, upphengdu salerni og steinvask hvoru tveggja með svörtu granít. Flísar á gólfi.

Nánari lýsing á neðri hæð:

Hjónaherbergi: Gott hjónaherbergi með innfelldri vegglýsingu, harðparket á gólfi. Búið er að stúka smá rými af sem er nýtt sem skrifstofurými.  Auðvelt er að taka niður skilrúmið og stækka þannig hjónaherbergið og eins opna úr hjónaherbergi í fataherbergi þar sem léttir veggir skilja rýmin að.

Barnaherbergi I: Vinstra megin þegar komið er niður stigann, mjög gott barnaherbergi með lausum skápum. Harðparket á gólfi.

Barnaherbergi II: Hægra megin þegar komið er niður stigann, mjög gott barnaherbergi með lausum skápum. Harðparket á gólfi.

Barnaherbergi III: Minna barnaherbergi. Harðparket á gólfi.

Baðherbergi: Glæsilegt baðherbergi með stóru baðkari, "walk in" sturtu með stuðlabergsflísum á vegg, steinflísum á gólfi, granít borðplata og vaskur, innfelld LED loftlýsing, hadklæðaofn, upphengt salerni. Stuðlabergsflísar á gólfi.

Þvottahús og fataherbergi: Mjög vel skipulagt þvottahús með góðri hvítri innréttingu með góðu skápaplássi, upphækkun í innréttingu og pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Gengið inn í fataherbergi í þvottahúsi. Flísar á gólfi í báðum rýmum.

Gengið er út úr neðri hæð í sólríkan og skjólglóðan vesturgarð með stórum sólpalli, heitum pott og leikplássi fyrir börn.  Í garðinum er geymsluskúr sem er nýttur í dag sem líkamsrækt.

Nánari upplýsingar veita:

Karl Lúðvíksson í síma 6636700, tölvupóstur kalli@croisette.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.

- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Kort af Laxatunga 31

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41