Steinhella 14
01-0125 · 221 Hafnarfirði



2 dagar á sölu
23.000.000 kr
478.170 kr/m²
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:
Steinhella 14 bil 25, 221 Hafnarfjörður
Rúmgott iðnaðarbil með um 3,9 m lofthæð, innkeyrsluhurð og geymsluloft. Afstúkuð snyrting er í bilinu og flóttaleið á sameiginlegan gang. Hentar vel fyrir lager, verkstæði eða létta iðnaðarstarfsemi.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 48.1 m².
Eign merkt 01-25, fastanúmer 230-7691 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Lýsing og skipulag eignar:
Innst í bilinu er opið geymsluloft sem ekki er skráð í fermetrafjölda eignarinnar. Lofthæð í húsnæðinu er um 3,9 m og innkeyrsluhurð um 3,5 m á hæð og 3,4 m á breidd. Gönguhurð er til hliðar við innkeyrsluhurð. Innanmál bilsins eru um 4,82 m á breidd og 9,30 m á dýpt. Innst í bilinu er afstúkuð snyrting með salerni og vaski og flóttaleið út á sameiginlegan gang. Húsnæðið er rúmgóður salur með aukinni lofthæð og millilofti og eru hillur til staðar í rýminu. Sér rafmagn og hiti eru í bilinu og er ekki virðisaukaskattskvöð á iðnaðarbilinu. Húsfélag er virkt og gilda skýrar reglur um umgengni á sameiginlegri lóð.
Byggingarlýsing:
Húsið er timburgrindarhús á steyptum undirstöðum, byggt árið 2013. Útveggir eru úr timbri með báruklæðningu að utan. Þak er tvíhalla og klætt með þakdúk.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is
Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.
- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.
Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






