Njarðarnes 10
01-0103 · 603 Akureyri



82 dagar á sölu
78.500.000 kr
364.947 kr/m²
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Njarðarnes 10 eign 103 - Vel staðsett atvinnuhúsnæði á neðri hæð með aðkomu frá Goðanesi - stærð 215,1 m²
Aðkoman er frá Goðanesi og er stórt sameiginlegt malbikað bílaplan fyrir framan með hitalögnum í hluta, næst húsinu.
Eignin skiptist í skrifstofu/afgreiðslu, kaffistofu, snyrtingu og verkstæði.
Gólfhiti er í allri eigninni og epoxy efni er á stærstum hluta.
Stórir gluggar, kerfisloft og innfelld lýsing eru í afgreiðslunni, fyrir innan eru kaffistofa og snyrting og er geymsluloft yfir því. Möguleiki er að taka gluggastykkið í afgreiðslunni úr og setja innkeyrsluhurð í staðinn sem fylgir með við sölu eignar.
Verkstæðisrýmið er um 20 metrar á dýpt og um 6,5 metrar á breidd. Lofthæðin er um 4 metrar.
Innkeyrsluhurð er um 3,6 metra há. Keyrsluhurð er mótordrifin stálsamlokuhurð með gluggum úr tvöföldu plasti.
Gönguhurð er við hliðina á innkeyrsluhurð og önnur inn í afgreiðsluna.
Sameiginleg inntök eru í húsinu með frádráttarmælum fyrir hvern eignarhluta.
Engin vsk-kvöð er á eigninni.
Eignin er í leigu - 5 ára samningur.
Eignin er í einkasölu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna