HÚSASJÁ

Leirdalur 17

01-0101 · 260 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
16 myndir

140 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2019

Byggingarár

622 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús



520 dagar á sölu

sell

88.900.000 kr

637.276 kr/m²

Eignasala.is kynnir

Leirdalur 17, 260 Reykjanesbæ

Glæsileg 4. herbergja neðri hæð með bílskúr í nýlegu 2 íbúða húsi í Dalshverfi innri Njarðvík, ATH skipti möguleg á minni eign.

Birt stærð eignar er 139,5m2, þar af er íbúð skráð 109,5m2 og bílskúr 30 m2.

Frágangur utanhúss

Húsið er einangrað að utan með 125mm steinull og klætt að utan með vönduðum flísum frá Álfaborg.

Allir gluggar, útidyrahurðir og svalahurðir eru úr timbri og koma frá Gluggasmiðjunni. Tvöfalt einangrunargler er í gluggunum og er 12mm loftbil á milli glerjanna.

Þakið er skilgreint einhalla og klætt með timbri og tvöfalt lag af tjörupappa brætt ofan á þakvirkið.  Þakeinangrun er 200mm steinull á milli þaksperra.  Utandyra er vönduð útilýsing auk rafmagnstengils.

Lóð er fullfrágengin með hitalögn í gönguleið. Handrið eru úr hertu öryggisgleri.

Tvö bílastæði á lóð fylgja  eigninni.

Frágangur innanhúss

Innveggir eru ýmist steinsteyptir eða hlaðnir með 10cm milliveggjastein.

Sérsmíðaðar innréttingar eru á eldhúsi, baði og þvottahúsi sem og fataskápar og eru innréttingarnar úr reyktri eik frá Ormsson/HTH og fataskápar eru hvítir frá Ormsson/HTH. Innihurðar eru sprautulakkaðar hvítar og koma frá Birgisson. Eldhústæki sem eru bökunarofn og helluborð eru af gerðinni AEG frá Ormsson, uppþvottavél og ísskápur fylgja

Hiti er í öllum gólfum eigna og eru votrými flísalögð með stórum   60x60 cm flísum frá Álfaborg og meginrými með  12 mm harðparketi frá Byko. Baðveggir eru flísalagðir að hluta með sömu flísum.

Hreinlætistæki eru frá Laufen og blöndunartæki frá Grohe. Í öllum eignum er sturta með hitastýrðu blöndunartæki, vegghengt salerni og handlaug með einnar handar blöndunartækjum. Einnig er handklæðaofn á baði. Í eldhúsi er niðurfelldur stálvaskur og einnar handar blöndunartæki. Í þvottaherbergi er ræstivaskur ásamt tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Lyfjaskápur, reykskynjari, slökkvitæki og eldvarnarteppi fylgir hverri eign.

Raflagnir

Rofar, tenglar og dósir eru settar upp í samræmi við raflagnateikningar. LED lýsing er bæði innan- og utandyrara. Síma og tölvutenglar eru í stofu, hjónaherbergi og barnaherbergjum.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Hafnargötu 90a í síma 420-6070 julli@eignasala.is  og  eignasala@eignasala.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.

Júlíus M. Steinþórsson 899-0555                        Jóhannes Ellertsson 864-9677

Löggiltur fasteignasali                                            Löggiltur fasteignasali

Kort af Leirdalur 17

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð