HÚSASJÁ

Stórikriki 2

01-0202 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

117 m²

Stærð

2

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2008

Byggingarár

4273 m²

Lóð

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



26 dagar á sölu

sell

89.900.000 kr

769.692 kr/m²

*Opið hús: 17. febrúar 2026 kl. 17:30 til 18:00*

Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali og Trausti Fasteignasala kynna virkilega fallega 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi við Stórakrika 2 í Mosfellsbæ. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu og borðstofu, baðherbergi, þvottahús, gang, anddyri og góðar svalir. Birt stærð séreignar skv. HMS er samtals 116,8 fm og þar af er 11,2 fm geymsla í kjallara. Íbúðinni fylgir sér merkt stæði í bílageymslu.

Allar nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir löggiltur fasteignasali í síma 8955198 eða á netfangið bjossi@trausti.is

Nánari lýsing:

Forstofa er með fataskáp og flísum.

Úr forstofu er komið inn í opið rými sem skiptist í stofu, borðstofu og opið eldhús með fallegri eikarinnréttingu.

Úr stofu er gengið út á verklegar svalir.

Svefnherbergi eru björt og rúm með veglegum fataskápum.

Baðherbergi er með hita í gólfi, fallegri innréttingu, handklæðaofni, sturtu, baðkari og upphengdu klósetti.

Mjög gott þvottahús er innan íbúðar með frábæru vinnuplássi

Eikarparket er á öllum gólfum, nema í forstofu, þvottahúsi og baðherbergi þar sem eru flísar.

Í kjallara er sérgeymsla ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Sérmerkt stæði er í bílakjallara og er innangengt í bílageymsluna. Búið er að leggja rafmagn fyrir hleðslustöðvar að öllum bílastæðum.

Stutt er í alla helstu þjónustu, verslun og skóla.  Margar gönguleiðir eru í nágrenninu í fallega náttúru.

Hér er um að ræða vel staðsetta vandaða eign með þessum eftirsóttu þremur svefnherbergjum!

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is.Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Stórikriki 2

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð