HÚSASJÁ

Friggjarbrunnur 35

01-0101 · 113 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
66 myndir

233 m²

Stærð

7

Herbergi

5

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

2008

Byggingarár

425 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur

Auka íbúð



634 dagar á sölu

sell

139.900.000 kr

599.657 kr/m²

Guðbjörg Helga og Gylfi Jens löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX kynna: Friggjarbrunnur 35, 113 Reykjavík

Nútímalegt, bjart og vel skipulagt 233 fm parhús á 3 hæðum með innangengum bílskúr, tvennum svölum, verönd, útsýni og fjallasýn. Fallegur módernískur arkitektúr með mörgum skemmtilegum smáatriðum.  Húsið er í dag með 3 svefnherbergjum en möguleiki er að fjölga þeim allt upp í 5 á einfaldan hátt. Sjónsteypuveggir og loft í hluta hússins og 5 m lofthæð í alrými á aðalhæð gefa eigninni mikinn sjarma.  Tvennar svalir eru í suður og garður neðan við hús með hellulagðri verönd og viðhaldsléttum garði með steinum og gróðri við lóðarmörk. Nýlegur arinn er í alrými á aðalhæð. Möguleiki er að útbúa aukaíbúð á jarðhæðinni (allar lagnir eru til staðar). Seljendur skoða uppítöku á 4 herbergja íbúð. Eignin getur verið laus fljótlega.

> >SÆKTU SÖLUYFIRLIT SJÁLFVIRKT HÉR

>> ÞRÍVÍDD SÝN Á HÚSIÐ. SKOÐAÐU EIGNINA BETUR MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR.

(Hægt er að sjá húsið án húsgagna með aðstoð gervigreindar, flakka á einfaldan hátt milli hæða,  og sjá loftmynd af eigninni.... allt með

táknunum neðst í vinstra horni... endilega prófaðu að smella þig áfram.

>>SAMÞYKKTAR TEIKNINGAR Á TEIKNINGAVEF REYKJAVÍKURBORGAR Sjá má hugmynd að skipulagi Efri hæðar þar, sem er opið rými í dag     NÚVERANDI SKIPULAG:

AÐALHÆÐ: Aðalinngangur. Forstofa, innangengur bílskúr, gestasalerni, alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, svalir. Steyptur stigi milli hæða

EFRI HÆÐ: Alrými með stofu og vinnuherbergi. (Á teikningum er gert ráð fyrir baðherbergi á hæðinni og hjónasvítu með fataherbergi sem og öðru herbergi), svalir.  Steyptur stigi milli hæða.

JARÐHÆÐ: 3 rúmgóð svefnherbergi, gangur, baðherbergi með sturtu og baðkeri, geymsla, þvottahús með fataskápum, útgengi út á verönd

NÁNARI LÝSING:

Innfeld LED lýsing er í öllum íverurýmum.

AÐALHÆÐ:

Gólf á hæðinni eru flotuð og lökkuð með gráu gólflakki.

Forstofa: Björt og rúmgóð með sérstaklega fallegum grænmöttum gluggum hólf í gólf sem gefa húsinu að utanverðu skemmtilegan svip sem og þessu rými.  Útidyrahurð er úr áli. Innangengt er í bílskúr úr forstofunni. Löng fataslá úr járni.

Gangur: Tengir saman rýmin á hæðinni.

Gestasalerni: Vegghengt salerni, vegghengd nett handlaug, opnanlegur gluggi, rennihurð sem eykur nýtileika rýmisins verulega.

Alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu: Eldhúsið er með hvítum skápum og innbyggðum ísskáp á endavegg. Einnig er innrétting eftir austurvegg og samhliða þeirri einingu er frístandandi eyja í stíl með beyki og sérsteyptum borðplötum sem tóna vel við sjónsteypuna. Bakaraofn er undir borði í eyju, spanhelluborð. Tengi fyrir uppþvottavél við vask. Það er mjög gott skápa/ skúffupláss í innréttingunni. Opnanlegur gluggi til austurs. Borðstofa er með tvöfaldri lofthæð sem tengir seman efri hæðina við aðalhæðina, og gefur góða birtu og tengingu við nærumhverfið með einstaklega skemmtilegum gluggum hólf í gólf og sérsaumuðum gardínum. Útgengi er út á svalir til suðurs og er fjallasýn af þeim. Í stofunni er steypt hilla og nýlegur arinn með gleri. Mjór hár gluggi innst í stofu.

Bílskúr: Rafdrifin bílskúrshurð, hvítar hillur og skápar. Hitaveita, rafmagn. Auðvelt að setja heitt og kalt vatn ef fólk vill.

NEÐRI HÆÐ:

Harðparket AC5 styrkleikafl. frá Birgisson er á gólfum á herbergjum og gangi, votrými eru með flísum

Stiginn er steinsteyptur með teppi.

Herbergi I: Einstaklega rúmgott með glugga til austurs og síðan gólfsíðum glugga og hurð út á verönd/garð. L laga herbergi.

Herbergi II: Rúmgott og bjart með glugga til suðurs og hvítum frístandandi fataskápum á einum vegg.

Herbergi III: Rúmgott með glugga til austurs.

Baðherbergi: Upphengt salerni, innrétting með skúffum og handlaug, vegghengdur speglaskápur, "Walk in" sturta og baðkar. Flísar á veggjum á votsvæði og gólfi.

Þvottahús / fataherbergi: Rúmgott með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Opnir skápar úr Ikea svo það er einstaklega þægilegt að ganga frá þvotti beint í skápa.

Geymsla: Rúmgóð geymsla sem tekur einstaklega mikið dót, er ferningslaga og því auðvelt að koma fyrir góðum hillum á alla veggi.

Útskot/geymsla undir stiga: Rýmið undir stiga getur nýst sem geymsla eða útskot fyrir gæludýrin.

Verönd/ garður: Við byggingu voru lagnarör lögð út fyrir heitan pott. Það er steypt verönd, steinagarður þar fyrir framan sem er einstaklega viðhaldsléttur með lausum blómapottum og smágróðri.  Útgengi er úr herbergi I en einnig er hægt að ganga niður með húsinu utanfrá í garð.

EFRI HÆÐ:

Harðparket AC5 styrkleikafl. frá Birgisson er á gólfi.

Opið rými: Í dag er efsta hæðin opið rými með sterku harðparketi á gólfi frá Birgisson (sama og á neðstu hæðinni). Svart stálhandrið er á enda hæðarinnar sem myndar skemmtilegar svalir niður á aðalhæð. Einstakt útsýni er af efstu hæðinni sem er björt og með gluggum í allar áttir, meira að segja stórum kringlóttum þakglugga.

Þetta rými er vinsæll íverustaður fjölskyldunnar, þar er góð vinnuaðstaða og stofa auk þess sem svæðið næst handriði getur nýst td. fyrir lítið pool borð langi fólki það. Allir hafa pláss þarna saman.

Auðvelt er að setja upp 2 herbergi þarna og baðherbergi. (sjá samþykktar teikningar) og því auðvelt að aðlaga að þörfum næstu eigenda.

Húsið stendur ofarlega í Úlfarsársdal sem er afar fjölskylduvænt hverfi. Skóli, leikskóli, sundlaug, bókasafn og endalausar gönguleiðir í friðsælli náttúrunni s.s. upp á Úlfarsfell beint frá heimilinu.

Allar nánari upplýsingar og bókanir skoðana veita:

Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897 7712 og gudbjorg@remax.is

Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 822 5124 og gylfi@remax.is

Kort af Friggjarbrunnur 35

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50Mynd 51Mynd 52Mynd 53Mynd 54Mynd 55Mynd 56Mynd 57Mynd 58Mynd 59Mynd 60Mynd 61Mynd 62Mynd 63Mynd 64Mynd 65Mynd 66