HÚSASJÁ

Hallveigartröð 5

01-0101 · 320 Reykholti í Borgarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
33 myndir

195 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2008

Byggingarár

1227 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



141 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

409.324 kr/m²

Fasteignasalan Garður

Baldur fasteignasali – Sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu einstaklega rúmgott og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á friðsælum og góðum stað að Hvallveigartröð 5 í Reykholti, Borgarbyggð. Eignin er skráð samtals 195,2 fermetrar, þar af er íbúðarhlutinn 162,6 fermetrar og bílskúr 32,6 fermetrar samkvæmt Þjóðskrá Íslands.

Nánari upplýsingar veitir: Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali / baldur@fastgardur.is / sími 450-0000

Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, fjögur svefnherbergi, hol/sjónvarpsrými, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, þvottahús og innbyggðan bílskúr. Frá stofu og baðherbergi er gengið út á skjólgóða verönd á baklóð þar sem heitur pottur er staðsettur. Um er að ræða mjög fallegt fjölskylduhús með góðri aðstöðu og notalegri aðkomu.

Nánari lýsing:

Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur. Gesta salerni.

Gestasnyrting: Flísalögð gólf og veggir. Upphengt salerni. Aðgengilegt úr forstofu.

Eldhús: Parket á gólfi. Ljós viðarinnrétting og flísar milli efri og neðri skápa. Ofn, helluborð, háfur og uppþvottavél. Eldhúsið er opið að holi og býður upp á góða vinnuaðstöðu.

Stofa/borðstofa: Rúmgott og bjart rými með parketi á gólfi og glugga í þrjár áttir. Útgengt er út á pall sem snýr í suður og er með sjólvegg.

Fjögur svefnherbergi: Öll með parketi á gólfum. Þrjú herbergjanna eru með fataskápum.

Baðherbergi: Útgengt er út á verönd með skjólvegg þar sem heitur pottur er staðsettur. Rúmgott rými. Flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni. Ljós viðarinnrétting og flísalögð sturta með gleri.

Þvottahús: Flísar á gólfi, hvít innrétting og skolvaskur. Innangengt frá þvottahúsi í bílskúr.

Bílskúr: Flísalagður, með hita, rafmagni og vatni.

Annað:

Húsið stendur efst í rólegu hverfi ofan við Reykholtskirkju. Um er að ræða timburhús á steyptum sökkli, byggt árið 2008. Varmaskiptir í húsinu. Hallogenlýsing. Klætt með liggjandi báru. Hellulögð innkeyrsla.

Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagt hús og skjólsælt útisvæði – kjörið fyrir fjölskyldufólk sem vill rólegt og fjölskylduvænt umhverfi í náttúrulegu og fallegu umhverfi. Skóli er í aðeins 6 kílómetra fjarlægð.

Nánari upplýsingar veitir:

Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali

baldur@fastgardur.is / sími 450-0000

Netverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður

Kort af Hallveigartröð 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu