HÚSASJÁ

Aflakór 17

01-0101 · 203 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
62 myndir

263 m²

Stærð

2

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2008

Byggingarár

562 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



56 dagar á sölu

sell

189.900.000 kr

722.053 kr/m²

Eignamiðlun kynnir:

**Bókið einkaskoðun hjá Brynjari í síma 896-1168 eða brynjar@eignamidlun.is**

Einstaklega bjart og fallegt 263m² parhús þar af 30.6m² innbyggður bílskúr. Fjögur góð svefnherbergi. Virkilega góð fjölskyldueign með fallegu útsýni yfir borgina. Gott útisvæði með heitum potti, verönd og opnu grænu svæði.

Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax

Sjá video af eigninni

Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 263m², flatarmál íbúðarrýmis er 232,4m² og flatarmál bílskúrs er 30,6m².

Eignin telur forstofu, fjögur svefnherbergi, sjónvarpsrými, tvær stofur, eldhús, tvö baðherbergi, þvottaherbergi/geymslu ásamt innbyggðum bílskúr.

Nánari lýsing:

Neðri hæð.

Komið er inn í rúmgóða forstofu með fatahengi, flísar á gófi. Frá forstofu er innangengt inn í flísalagðan bílskúr. Tvö rúmgóð svefnherbergi. Á milli herbergja er gott sjónvarpsrými með hurð útí garð, lítið mál að breyta þessu í fimmta svefnherbergið. Rúmgott baðherbergi með baðkari, handklæðaofni, vegghengt salerni, flísar á gólfi og í kringum baðkar. Stórt þvottaherbergi / geymsla á jarðhæð. Innfelld lýsing er á allri jarðhæðinni og harðparket á gólfum.

Efri hæð.

Steyptur stigi á milli hæða. Þegar komið er upp á hæðina tekur á móti manni fallegt opið alrými sem tengir saman borðstofu, stofu og eldhús. Góð lofthæð á allri hæðinni sem er með innfelldri lýsingu. Eldhúsið er bjart með hvítri eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, spanhelluborð, ofn í vinnuhæð. Útgengt frá eldhúsi á fallega verönd og velhirtan garð sem snýr til suðurs. Borðstofan er með stórum gluggum með fallegu útsýni, útgengt frá borðstofu á svalir. Frá rúmgóðri stofunni er einnig fallegt útsýni, gert er ráð fyrir kamínu í stofu. Stórt hjónaherbergi með fataherbergi innaf, útgengt á verönd frá hjónaherberginu. Ágætis svefnherbergi er við hliðina á hjónaherbergi. Einnig er nýlega uppgert baðherbergi  á hæðinni með sturtu og handklæðaofni.

Lóðin er fallega frágengin með gróðri, pöllum og skjólveggjum. Steypt upphitað bílaplan framan við hús þar sem er pláss fyrir allt að fjóra bíla. Uppsett hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. Aftan við hús í suðurgarði er timburverönd, skjólveggir og heitur pottur (hitaveitu).

Húsið er á vinsælum stað í Kórahverfinu í Kópavogi þar sem stutt er í náttúruna, golfvöll GKG, göngu og hjólaleiðir sem og alla helstu þjónustu, verslun, leik- og grunnskóla.

Nánari uppl.

Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Kort af Aflakór 17

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50Mynd 51Mynd 52Mynd 53Mynd 54Mynd 55Mynd 56Mynd 57Mynd 58Mynd 59Mynd 60Mynd 61Mynd 62