HÚSASJÁ

Birkiskógar 4

01-0101 · 300 Akranesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
43 myndir

216 m²

Stærð

6

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2007

Byggingarár

714 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur



31 dagar á sölu

sell

134.500.000 kr

620.960 kr/m²

Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf  sími 570-4824.

Fallegt og viðhaldslítið 216,6 fm einbýlishús á einni hæð, suðurgarður með heitum potti ( hitastýring í bílskúr) Húsið er byggt úr forsteyptum einingum og klætt að utan með flísum, innkeyrsla með hitalögn. Ál á þaki húss og þakkanti. Gólfhitalagnir lagðar ofan á steypta plötuna, ( handstýring í gólfhitakistu í þvottahúsi )

Forstofa með góðu skápaplássi. Hol opið i alrými.

Innan hússins eru 4 herbergi, þ.e 3 svefnherbergi auk tæplega 15 fm sjónvarpsherbergis sem nýta mætti sem fjórða svefnherbergi, gengið út í garð úr sjónvarpsherbergi og borðstofu. Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og flísalögðu sérbaðherbergi inn af, baðkar og innrétting. Aðalbaðherbergi er inn af gangi, flísalagt og með sturtu. Þvottahúsið er afar rúmgott og þaðan gengið út bakatil, þar er 4 fm útigeymsla, einnig innangengt í bílskúr úr þvottahúsi, steinteppi á bílskúr. Búið er að leggja fyrir 3ja fasa heimahleðslu.

Innveggir húss eru steyptir ásamt loftaplötu. Innfelld lýsing í loftum.

Eldhús er rúmgott með eldaeyju, tengi fyrir uppþvottavél, áfast eldhúsborð, flísar á gólfi, ( Innrétting frá Trésmiðju Akraness ) Borðstofa og aðalstofa í alrými, eitt þrep niður í stofu þar sem arinn er. Á gólfum er parket og flísar.

Allar nánari uppl. veitir Hákon á hakon@valfell.is

Kort af Birkiskógar 4

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð