HÚSASJÁ

Meltröð 4

01-0201 · 605 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

97 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2008

Byggingarár

1300 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



15 dagar á sölu

sell

66.900.000 kr

689.691 kr/m²

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Meltröð 4 íbúð 201 - Björt og vel skipulögð 3-4ra herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýli á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit - stærð 97,0 m²

Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, geymslu sem nýtist sem svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.

Sameiginleg geymsla/tæknirými er á neðri hæðinni.

Forstofa er með flísum á gólfi og þreföldum skáp.

Þvottahús er inn af forstofu, þar eru flísar á gólfi, hvít innrétting með vask, hillur og opnanlegur gluggi.

Eldhús, snyrtilegt tvílit innrétting, hvít og eik með flísum á milli skápa. Stæði eru fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingunni. Borðkrókur með skemmtilegum útsýnisglugga til austurs.

Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem parket er á gólfi. Í stofu eru gluggar til tveggja átta og hurð út á suður svalir, skráðar 11,8 m² að stærð.

Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja. Hvít innrétting, upphengt wc, handklæðaofn og walk-in sturta.

Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og góðum eikarlituðum fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 10,4 og 13,1 m².

Geymsla er innréttuð sem svefnherbergi í dag með parketi á gólfi og þreföldum fataskáp. Stærð geymslu er skv. teikningum 8,5 m².

Annað

- Gólfhiti er í íbúðinni.

- Innfelld led lýsing er í lofti á ganginum, í stofu og eldhúsi.

- Búið er að setja upp rafmagnsstaura við bílaplan og tengja þá við mæla hverrar íbúðar.

- Húsið var málað að utan sumarið 2025.

- Örstutt í leik- og grunnskóla og sundlaugina.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Meltröð 4

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð