HÚSASJÁ

Egilssel 9

01-0201 · 700 Egilsstöðum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
18 myndir

186 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2014

Byggingarár

315 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús



411 dagar á sölu

sell

88.500.000 kr

475.551 kr/m²

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  inni@inni.is

Mjög flott íbúð með fjórum svefnherbergjum og innbyggðum 34,1 m² bílskúr í raðhúsi við Egilssel á Egilsstöðum.

Seljandi er tilbúinn að skoða skipti á minni/ódýrari eign á Egilsstöðum eða höfuðborgarsvæðinu.

Íbúðin er á tveimur hæðum og er gengið af bílastæði inn á efri hæð. Þar eru stofa og eldhús í nokkuð opnu rými með parket á gólfi og upptekið loft. Útgengt úr stofu á stórar suðursvalir. Á efri hæð er mjög rúmgott svefnherbergi með parket á gólfi, herbergið er nokkuð stórt og getur vel nýst sem sjónvarpshol. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með parketflísum á gólfi. Á baðherbergi er sturta og handklæðaofn. Forstofa er flísalögð og úr forstofu er innangengt í flísalagðan bílskúr. Yfir bílskúr og hluta af efri hæð er gott geymsluloft sem búið er að klæða með timbri.

Á neðri hæð eru þrjú svefnherbergi, öll með parket á gólfi. Inn af hjónaherbergi er rúmgott fataherbergi. Baðherbergi neðri hæðar er flísalagt í hólf og gólf, þar er bæði rúmgóð sturta og baðkar sem og handklæðaofn. Þvottahús er flísalagt en parket á holi. Úr holi er útgengt á timburverönd í garði.

Vel skipulögð og flott eign, rétt við útivistarparadísina í Selskógi.

Kort af Egilssel 9

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð