HÚSASJÁ

Krókeyrarnöf 9

01-0101 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
100 myndir

288 m²

Stærð

7

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2008

Byggingarár

1371 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



583 dagar á sölu

sell

197.000.000 kr

682.606 kr/m²

Kjöreign ehf., fasteignasala, Ármúla 21, Reykjavík, sími 533-4040 kynnir glæsilegt, nýlegt einbýlishús á útsýnisstað við Krókeyrarnöf, Akureyri. Birt stæð er 288,6 fm.

Lýsing. Í húsinu sem er að hluta til á tveimur hæðum eru fjögur rúmgóð svefnherbergi, tvö fullbúin baðherbergi, 75 fm. steyptur pallur til suðurs með heitum potti, rúmgóð stofa með gluggum til austurs og rúmgóð borðstofa. Flísar eru á öllum gólfum eignarinnar, gólfhiti í gólfum og innfelld lýsing í öllum rýmum utan þvottahúss og bílskúrs. Um er að ræða vandaða fasteign sem er teiknuð af Loga Einarssyni, arkitekt.

Nánari lýsing, efri hæðin. Á hæðinni eru tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, tvær stofur, auk þvottahúss, forstofu og bílskúr. Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp á vesturvegg, rennihurð út á pall til suðurs.

Baðherbergi er með góðri innréttingu, granít á borðplötu, baðkar og góð sturta, úr baðherberginu er gengið út á sólpall og beint að heitum potti.

Svefnherberrgi er um 12 fm. að stærð með útgöngu út á pall, herbergið er án skápa og er merkt geymsla á teikningu.

Eldhús er rúmgott þar er innrétting með granítborðplötu, Miele tæki. Úr eldhúsinu er gengið út á pall.

Borðstofa er rúmgóð með útsýni til suðurs og austur.

Stofa er einnig rúmgóð með aukinni lofthæð, hallandi loft, útsýnisgluggar til austurs.

Forstofa er rúmgóð með góðum fataskáp.

Þvottahús er rúmgott með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkarar, mikið geymslupláss í skápum auk þvottahúsinnréttingu.

Bílskúr tengist þvottahúsi. Inngangur í hann er á norðurhlið og rafknúin bílskúrshurðaopnari til vesturs.

Nánari lýsing, neðri hæðin. Tvö rúmgóð svefnherbergi með skápum. Sjónvarpshol með útgöngu út á lóð til suðurs. Rúmgott baðherbergi með sturtu og innréttingu, granítsteinn á borðplötu, auk opins vinnuherbergis.

Undir aðalinngangi er 6 fm. opin útigeymsla.

Glæsilegt einbýlishús á fallegum útsýnisstað. Gott skipulag. Fullfrágengin eign byggð 2008. Hús teiknað af Loga Einarssyni arkitekt.

Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar í síma 533-4040 eða á kjoreign@kjoreign.is

Dan Wiium lögm. og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 eða dan@kjoreign.is

Ásta María Benónýsdóttir, lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 eða asta@kjoreign.is

Kort af Krókeyrarnöf 9

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu