HÚSASJÁ

Stórikriki 1

01-0201 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

122 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2007

Byggingarár

2582 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



4 dagar á sölu

sell

83.000.000 kr

682.005 kr/m²

** Opið hús þriðjudaginn 10. mars frá kl. 16:30 til 17:00 -  Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Rúmgóð og björt 121,7 m2 3ja herbergja endaíbúð á 2. hæð í lyftuhúsi við Stórakrika 1A í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 121,7 m2, þar af íbúð 100,3 m2 og geymsla 21,4 m2. Yfirbyggðar svalir í suðvesturátt með svalalokun. Íbúðin skiptist í forstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu og borðstofu. Vinsæl staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ. Stutt í alla helstu þjónustu.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing:

Forstofa er með parketi á gólfi og fataskáp.

Stofa og borðstofa eru saman í rúmgóðu opnu rými með parketi á gólfi. Úr rýminu er gengið út á svalir með svalalokun í suðvesturátt.

Eldhús er með viðarinnréttingu og eyju. Í innréttingu er uppþvottavél, ísskápur, bakaraofn, helluborð og vifta.

Svefnherberg nr. 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum.

Svefnherberg nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskápum.

Baðherbergi er með flísum á gólfi og á veggjum. Vegghengt salerni, innrétting og sturta. Inn af baðherbregi er þvottahús.

Þvottahús er með flísum á gólfi, innréttingu, þvottavél og þurrkara

Sérgeymsla í sameign. Er skráð 21,4 m2.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara hússins.

Verð kr. 83.000.000,-

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Kort af Stórikriki 1

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu