Koparslétta 9
01-0103 · 162 Reykjavík



205 dagar á sölu
51.500.000 kr
402.030 kr/m²
LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / sveinn@landmark.is kynna:
Um er að ræða 128.1 fm atvinnuhúsnæði við Koparsléttu 9 á Kjalarnesi, bil 103.
Góð lofthæð í húsnæði, gott útipláss.
HÚSNÆÐIÐ GETUR VERIÐ LAUST VIÐ KAUPSAMNING.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Húsnæði er skráð 128.1 fm merkt 01-01-03, og skiptist í 88.1 fm á jarðhæð og 40 fm milliloft.
Ágætis plan er framan við húsnæði.
Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
Nánari lýsing og skipting á húnæði:
Húsnæðið skiptist upp í opinn vinnusal með mikilli lofthæð, birt stærð gólfflatar er samtals 88.1 og milliloft er 40 fm sem unnt er að hafa starfsmannaðstöðu eða skrifstofu. 3ja fasa rafmagnstenglar til staðar.
Lofthæð 4,7 - 6,5 m. (4 m. undir millilofti).
Rafdrifin innkeyrsluhurð og er hæð á hurð um 4 m og svo er venjuleg inngangshurð.
Flóttaleið er úr húsnæði inná gang sem gengur eftir miðju húsnæðinu og er með útgengi á báðum göflum út úr húsi.
Upphitun er með gólfhita og hitablásara. Niðurföll í gólfum.
Húsnæðið er án virðisaukaskattskvaðar.
Á jarðhæð er skolvaskur og snyrting með upphengdu salerni og vask.
Verið er að koma húsnæðinu á byggingarstig 7 (í lokaúttekt).
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.isSkoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna







