HÚSASJÁ

Dalsás 10B

02-0203 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

96 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2011

Byggingarár

5825 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



9 dagar á sölu

sell

79.800.000 kr

831.250 kr/m²

Hraunhamar fasteignasala kynnir þriggja herbergja íbúð á efstu hæð með sérinngangi á þessum frábæra útsýnisstað í Áslandshverfinu í Hafnarfirði.

Íbúðin er í lokuðum botnlanga og er stórglæsilegt útsýni yfir höfuðborgarsvæðið, sjóinn, jökulinn ofl.

Íbúðin er skráð samtals 96 fm með 7,2 fm geymslu á fyrstu hæð. Eigninni fylgir  bílastæði í lokaðri bílageymslu.

Einfalt er að gera svalalokun á stóru suður svalirnar. (ca 19 fm). Eignin er laus strax og til sýnis. 

# Stórglæsilegt útsýni

# Eitt sérbílastæði í bílastæðahúsi. (Bílaþvottaaðstaða er mjög góð í bílastæðahúsinu) 

# Tvennar svalir,  

# Laus strax og til sýnis.

# Dýrahald er leyft

Skipting eignarinnar: Forstofa, hol, stofa, borðstofa, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús, tvennar svalir, einnig fylgir sér stæði í lokaðri bílageymslu.

Sérgeymsla á jarðhæð og sameiginleg vagna- og hjólageymsla. Auk reglubundinnar sameignar. 

Nánari lýsing eignarinnar: 

Forstofa með fataskápum. 

Þvottahús og sér inngangur í íbúðina úr þvottahúsinu.

Eldhús með eikarinnréttingu frá Axis, Fín eyja og gott geymslupláss. 

Björt og fín stofa og borðstofa og þaðan er utangengt út á svalir, glæsilegt útsýni þaðan yfir höfuðborgarsvæðið. 

Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum , útgengt út á suður svalir frá hjónaherbergi. 

Eitt barnaherbergi með fataskáp. 

Flísalagt baðherbergi með baðkari, sturtuklefa og  innréttingu.

Gólfefni eru eikarparket og flísar. 

Í sameign er sameignleg hjóla-og vagnageymsla, Hiti í stéttum og tröppum. 

Eitt bílastæði fylgir með eigninni í mjög snyrtilegri bílageymslu, Gólfhiti þar. Stæði B2.

Búið að koma tengingu fyrir rafbíl í stæðinu.

Þetta er björt og skemmtileg íbúð á besta stað innst í botnlanga með frábæru útsýni. Stutt í skóla og leiksskóla og fallegar gönguleiðir allt í kring. 

Fasteignamat samtals 77.250.000.-

Nánari upplýsingar veita:

Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is

Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, s. 659-0510, glodis@hraunhamar.is

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.

3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.

Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is

Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Kort af Dalsás 10B

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð